Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Eimskipsmótaröðin: Hákon Örn fór á kostum og jafnaði vallarmetið
Hákon Örn Magnússon. Mynd: [email protected]
Föstudagur 2. júní 2017 kl. 18:04

Eimskipsmótaröðin: Hákon Örn fór á kostum og jafnaði vallarmetið

Hinn 19 ára gamli Hákon Örn Magnússon lék frábært golf á fyrsta hringnum á Símamótinu á Eimskipsmótaröðinni. Keppni hófst í morgun á Hamarsvelli í Borgarnesi og er þetta fjórða mótið á keppnistímabilinu 2016-2017.

Hákon Örn lék á sex höggum undir pari og er með tveggja högga forystu. Hann fékk alls sex fugla á hringnum og tapaði ekki höggi. Skorið var jöfnun á vallarmeti sem heimamaðurinn Bjarki Pétursson átti.

Örninn 2025
Örninn 2025

Skor keppenda í karlaflokki var mjög lágt en alls voru 13 kylfingar á pari eða betra skori.

Jafnir í öðru sæti eru Mosfellingarnir Kristján Þór Einarsson og Kristófer Karl Karlsson. Þeir léku báðir á fjórum höggum undir pari.

Lárus Ingi Antonsson deilir fjórða sætinu með Vikari Jónassyni eftir hring upp á 3 högg undir pari. Lárus Ingi, sem er einungis 15 ára gamall, fékk alls 44 punkta á hringnum í dag

Staða efstu kylfinga:

1. Hákon Örn Magnússon, GR, -6
T-2. Kristján Þór Einarsson, GM, -4
T-2. Kristófer Karl Karlsson, GM, -4
T-4. Lárus Ingi Antonsson, GA, -3
T-4. Vikar Jónasson, GK, -3
6. Viktor Ingi Einarsson, GR, -2
T-7. Stefán Þór Bogason, GR, -1
T-7. Hlynur Bergsson, GKG, -1
T-7. Egill Ragnar Gunnarsson, GKG, -1


Kristófer Karl Karlsson, GM. Mynd: [email protected]


Kristján Þór Einarsson, GM. Mynd: [email protected]

Ísak Jasonarson
[email protected]