Fréttir

Evrópumót drengjalandsliða ekki haldið í ár
Dagbjartur Sigurbrandsson hefði að öllum líkindum spilað með Drengjalandsliðinu í október.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 6. október 2020 kl. 13:03

Evrópumót drengjalandsliða ekki haldið í ár

Golfsamband Evrópu, EGA, hefur tekið þá ákvörðun að aflýsa Evrópumóti drengjalandsliða (Jean-Louis Dupont Trophy).

Mótið átti að fara fram á dagana 19.-22. október á Parador De El Saler vellinum á Spáni og var Ísland með lið skráð til leiks. 

Alls höfðu 18 þjóðir skráð sig til keppni en vegna Covid-19 ástandsins í Evrópu var ákveðið að aflýsa keppninni.

Þjóðirnar sem höfðu skráð sig til leiks voru: Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, Eistland, Frakkland, Þýskaland, Ísland, Ítalía, Holland, Noregur, Pólland, Rússland, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð og Sviss.