Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fjöldi íslenskra kylfinga á Spáni - Keflavíkurgengi og Golfklúbburinn Teigur
Hannes Ragnarsson sem rætt er við er hér lengst til vinstri með keflvískum golffélögum, Sæmundi, Þorsteini, Gunnólfi, Gunnari og Sigurvin.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 22. apríl 2026 kl. 10:42

Fjöldi íslenskra kylfinga á Spáni - Keflavíkurgengi og Golfklúbburinn Teigur

Það er sífellt að verða vinsæll hjá íslenskum kylfingum að leika golf á Spáni, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Í golfklúbbnum Teigi eru 150 Íslendingar sem dvela þar ytra á veturna og ylja sér við golfleik og þá er sérstakt Keflavíkurgengi sem hittist reglulega.

„Teigur er íslenskur golfklúbbur og í honum eru 150 kylfingar sem sýnir hvað það er mikill fjöldi eldri Íslendinga sem dvelja á Spáni í mislangan tíma utan sumars heima.

„Það er 3ja ára bið að komast í klúbbinn. Við  förum saman í fimm daga ferðir vor og haust hér suðurfrá og svo eina helgi heima. Við spilum á Vistabella þar sem klúbburinn er með samning,  síðan spilum við nokkrir Keflvíkingar karlagolf alla föstudaga. Síðan er laugardags golf hjá Keflavíkurgenginu sem við köllum og þá spilum við Maruqesa sem er okkar heimavöllur. Svo förum við stöku sinnum á helstu golfvellina hér í kring, 3 til 4 sinnum í viku, oft níu holur inn á milli,“ segir Keflvíkingurinn Hannes Ragnarsson.

All nokkrir Keflvíkingar dvelja langdvölum á Spáni og Hannes segir að Keflavíkurgengið hafi orðið til þegar tvenn, þrenn hjón tóku sig saman til að hittast á golfvellinum. 

„Við settum upp síðu á Facebook merkta „Keflavíkurgengið“ og viðbrögðin léttu ekki á sér standa. Þetta hafa verið frá fjórum upp í sex holl af Keflvíkingum bæði búsettum og brottfluttum. Við höldum eitt „Sunny-KEF“ golfmót í október á hverju ári sem Sigríður Snorradóttir og Sigurvin Guðfinnsson hafa haldið utan um. Það hefur verið frábært mæting í það, 40-50 manns og svo endum við daginn í sameignlegrum kvöldverði og verðlaunaafhendingu. Við sem erum hér á Spáni erum að spila seinni hálfleik og með það eina markmið að njóta leiksins. Við þekkjumst öll og fáum tækifæri til að endurnýja kynnin. Höldum þessu áfram vonandi út allan leikinn,“ sagði Hannes.