Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Framkvæmdastjórinn og fyrrum atvinnukylfingur með 54 í forgjöf
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 21. júní 2023 kl. 11:56

Framkvæmdastjórinn og fyrrum atvinnukylfingur með 54 í forgjöf

Þórður Rafn nýr framkvæmdastjóri GKB. Sólarhringsmótið 24 open í Kiðjabergi í Heimsmetabók Guinness?

„Ég gat stundað atvinnugolf í sjö ár, svo tók við annað verkefni - að stofna fjölskyldu,“ segir Þórður Rafn Gissurarson, nýráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs.

Golfklúbbur Kiðjabergs (GKB) er einn fjölmargra frábærra golfvalla á Suðurlandsundirlendinu en klúbburinn var stofnaður árið 1993 og fagnar því þrjátíu ára afmæli á þessu ári. Félag húsasmíðameistara á landið en mjög vinsæl sumarbústaðabyggð er allt í kringum völlinn og mjög margir iðnaðarmenn eru í klúbbnum og eiga bústaði í nágrenninu. Því eru hæg heimantökin þegar eitthvað þarf að framkvæma en fyrir þetta tímabil varð breyting á framkvæmdastjórastöðunni, Birkir Már Birgisson lét af störfum og tók við sem vallarstjóri hjá Nesklúbbnum og hinn kunni afrekskylfingur, Þórður Rafn Gissurarson tók við. Margir kylfingar kveikja á nafni Þórðar en hann lék sem atvinnumaður um sjö ára skeið frá árunum 2011 til 2018 og landaði Íslandsmeistaratitlinum árið 2015. Eftir að atvinnuferlinum lauk tók við annað og stærra hlutverk, að stofna fjölskyldu. Golfiðkun hefur því legið í dvala og Þórður gæti í raun byrjað með upphafsforgjöfina 54 ef hann myndi hefja leik í dag því hann hefur ekki leikið keppnisgolf svo lengi!

Þórður hóf störf í byrjun febrúar og hefur haft í nógu að snúast. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég ræðst í svona framkvæmdastjórastarf en ég var íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Ég frétti af því að Birkir Már væri að láta af störfum, hringdi í einn stjórnarmanna GKB og lét vita af áhuga mínum og fékk starfið. Það hefur verið nóg að gera, maður þarf að geta vaðið í öll störf og ég er kannski þannig gerður að ég vil sigra allan heiminn strax en maður þarf einfaldlega að trappa sig niður og slaka á. Af tíu hugmyndum kemst kannski ein til tvær í framkvæmd strax. Ég nýt þess að taka við frábæru búi af Birki Má en auðvitað er ég með mínar hugmyndir um hvernig golfklúbbur og þá kannski sérstaklega klúbbur eins og GKB á að vera rekinn. Er líka með frábæra stjórn sem er til í að hlusta á mínar hugmyndir og hikar og ekki við að koma málunum í gang. Ég hef mikla reynslu af keppnisgolfi í Evrópu og þar sér maður hvernig klúbbar og vellir eru reknir, margt af því er mjög auðvelt að heimfæra yfir á íslenskar aðstæður.“ 

Örninn 2025
Örninn 2025

Þórður Rafn á keppnisvellinum fyrir nokkrum árum.

Sanngjarnari völlur

Það hefur oft verið sagt að Kiðjaberg sé einn af erfiðari golfvöllum landsins. Þórður tekur undir það. „Mér finnst kannski helsta viðfangsefnið hjá okkur í Kiðjabergi, að gera völlinn aðeins sanngjarnari. Hann er áskorun og ekki bætir úr skák að bæta þreytu inn í þá jöfnu en þó maður sé á bíl, er áskorun að skora völlinn. Við höfum því hafið það ferli að auðvelda völlinn, t.d. með því að fjarlægja glompur sem voru hugsaðar meira sem vörn gegn betri kylfingum en höfðu mest áhrif á venjulega kylfingsins. Við viljum að upplifun kylfinga sé frábær frá því þegar komið er á bílastæðið þangað til keyrt er heim eftir skemmtilegan dag og góðar veitingar upp í skála hjá Rakel sem er rómuð fyrir frábæran mat. Fáum kylfingum finnst gaman að ganga í burtu með 25 punkta, af hverju ekki frekar að auðvelda völlinn aðeins og sjá birdie- eða parpelann fara oftar á loft? Það er miklu skemmtilegra að koma inn með 36 punkta með fjórum pörum heldur en með fjórum skrömbum (double bogey) sem besta skor yfir hringinn.“

Frábær breyting

Þórður kann mjög vel að meta breytinguna sem hefur átt sér stað á Íslandi varðandi teigmerkingar. „Þetta tal um kvenna- og karlateiga er auðvitað barn síns tíma. Bara það eitt að breyta litunum útrýmir þessum gamla hugsunarhætti. Kylfingar eiga að spila frá þeirri lengd sem hentar þeim. Í staðinn fyrir að hugsa hvaða teig þeir spila venjulega af á frekar skoða út frá lengd vallarins sem á alltaf að vera forsendan áður en haldið er út á golfvöllinn. Þetta setur golfið á annað stig fyrir viðkomandi kylfing. Tökum sem dæmi hefðbundinn karlkylfing sem er vanur að spila sinn heimavöll af aftari teignum, þeim gamla gula, segjum að hann sé með tíu til fimmtán í forgjöf. Með því að spila af fremri teignum er hann kominn með allt annan völl en hann er vanur, þó svo hann sé að spila sama völlinn. Allt í einu þarf hann að fara slá högg inn á flöt með kylfum sem hann er ekki vanur að nota dagsdaglega. Hann æfir því öðruvísi og verður þ.a.l. betri kylfingur. Ég er sem stendur í PGA-golfkennaranáminu og hef verið að kenna. Ég myndi segja að þetta sé með því betra sem kylfingurinn getur gert, að spila af mismunandi teigum því þá er verið að æfa mismunandi þætti golfsins. Þegar ég var í atvinnugolfinu tók ég mig t.d. til og spilaði eitt sumarið alltaf af rauðum teigum þegar ég var ekki að keppa, stundum spilaði ég undir 60 höggum en stundum á parinu, þá sá ég hvað ég þyrfti að bæta,“ segir Þórður.

„Þegar ég var í atvinnugolfinu tók ég mig t.d. til og spilaði eitt sumarið alltaf af rauðum teigum þegar ég var ekki að keppa, stundum spilaði ég undir 60 höggum en stundum á parinu, þá sá ég hvað ég þyrfti að bæta“ 

Heimsmetabók Guinness?

Undanfarin ár hefur GKB staðið fyrir móti sem ber nafn með rentu, „Gull 24 Open“. Ræst er út stöðugt í 24 klukkustundir og stefnir klúbburinn á að senda umsókn til heimsmetabókar Guinness, um flesta þátttakendur í einu móti.
„Það var Birkir Már, forveri minn, sem kom með þessa hugmynd á sínum tíma en hún er frábær að mínu mati. Ég veit ekki um margar þjóðir sem státa af því að geta leikið golf allan sólarhringinn, hið minnsta hef ég ekki heyrt um svona mót þar sem ræst er út í 24 klukkustundir samfleytt. Hámarksfjöldinn er 576 og við erum svo sem ekki komnir í þann fjölda en ég hef fulla trú á að við náum því, tala nú ekki um ef við setjum stefnuna á að fá afrekið skráð í heimsmetabókina. Það myndi vekja gífurlega athygli á mótinu og myndi held ég laða að fullt af erlendum golfurum. Útlendingarnir eiga ekki til aukatekið orð yfir landinu okkar og að geta spilað allan sólarhringinn í u.þ.b. mánuð. Skráning í mótið er hafið. Fyrsta ræsing verður föstudaginn 30. júní kl. 14 og sú síðasta laugardaginn 1. júlí kl. 13:50. Eflaust verður slegist um að spila á nóttunni en ég segi að það sé fátt betra en að leika Kiðjabergsvöllinn að kvöldi eða nóttu til, með fuglasönginn á fullu með allt þetta útsýni. Það verður gaman að sjá hver endanlegur fjöldi verður og ég stefni að sjálfsögðu á að taka þátt, sem súkkulaði, og hlakka til.

Fyrir utan þetta mót erum við nokkuð duglegir í mótahaldi. Við erum venjulega með innanfélagsmót fyrir konurnar okkar á föstudögum, það eru oft fyrirtækjamót í gangi, við vorum með stóra Texas scramble mótið um daginn sem var vel sótt. Við höldum auðvitað okkar meistaramót og þá er alltaf kátt á hjalla.“

Fyrrum atvinnukylfingurinn með 54 í forgjöf

Þórður Rafn tókst á nýtt hlutverk eftir að atvinnukylfunum var lagt, hann er nýbúinn að eignast sitt þriðja barn með eiginkonu sinni, Tinnu Birgisdóttur. Síðasti golfhringurinn hans var í Íslandsmótinu í höggleik árið 2016 og því færist hann sjálfkrafa upp í 54 í forgjöf. „Ég er líklega besti 54 forgjafagolfari Íslands að svo stöddu en ég hef bara ekkert verið að stunda golf undanfarin ár. Við Tinna vorum að eignast okkar þriðja barn fyrir fimm mánuðum og þar fyrir utan erum við með eina þriggja ára og aðra tveggja ára. Það var mikið að gera sem íþróttastjóri hjá GR og ég spilaði ekkert sjálfur. Einu skiptin sem ég fór út á völl var með kylfingum úr barna- og afreksstarfi klúbbsins til að miðla minni reynslu. Ég hef einfaldlega sett alla mína orku í fjölskylduna. Ég gæti trúað að ég væri með u.þ.b. 2 - 3  í forgjöf í dag en lægst fór ég niður í +4 eða +5. Ef ég myndi skrá mig til leiks í Íslandsmótið í sumar og æfa á fullu í hálfan mánuð, myndi ég alveg geta staðið í þeim bestu einhvern daginn, tala nú ekki um ef þeir væru ekki að spila sitt besta golf en á fjögurra daga móti væri það ekki séns. Til þess að keppa við þá bestu hér á landi, þarf einfaldlega að æfa eins og þeir bestu og ég hef ekki þann tíma í dag. Ég fékk að láta drauminn rætast, ég stundaði atvinnugolf um sjö ára skeið og var í raun einn af brautryðjendunum en ég og Stefán Már Stefánsson hörkuðum saman í nokkur ár. Við lærðum mjög mikið af þessu. Ég held að atvinnukylfingarnir okkar í dag hafi lært fullt af okkur en bara það að ferðast saman, gista saman, deila bíl og ekki síst, hafa félagsskap af hvorum öðrum, er mjög mikilvægt. Ég var mest að spila í Þýskalandi og innkoman ekki mikil. Það var mikill útlagður kostnaður á móti verðlaunafénu sem maður vann sér inn en yfir höfuð, er ég mjög stoltur af þessu tímabili í mínu lífi og sé ekki eftir neinu. Hvað framtíðin ber í skauti sér kemur bara í ljós, ég er á besta aldri og ef ég myndi hella mér af fullum krafti aftur í keppnisgolf hér landi, hef ég fulla trú á að ég myndi blanda mér í baráttuna. Ég er einfaldlega í öðrum erindagjörðum í dag, ætla að koma ungunum mínum á legg og svo sjáum við til,“ sagði Þórður Rafn að lokum.