Gestir spiluðu fleiri hringi en félagsmenn á Flúðum
Gestir léku fleiri hringi en félagsmenn á Selsvelli á Flúðum á þessari golftíð. Fyrsti hringurinn var leikinn 4. maí á sumarfötum en sá síðasti 9. nóvember sem er sjaldgæft á Flúðum. Reksturinn golfklúbbsins skilaði 38 milljóna króna hagnaði á starfsárinu og gekk starfsemin vel.
Gestir léku 7.100 hringi, félagsmenn 6.300 og um 1.500 hringir voru leiknir í mótum en ástand vallarins var gott í sumar. Flatir voru í sínu besta formi eins og oft áður frá miðjum júlí og héldu sér vel allt til síðasta opnunnardags.
Þetta kom fram á aðalfundi klúbbsins föstudaginn 27. nóvember, sem um 60 félagsmenn sóttu. Um 25 milljónir króna af hagnaðinum renna til almannaheillafélagsins sem fara til niðurgreiðslu skulda vegna kaupa á golfvellinum árið 2022. Fjárfestingar í aðstöðu og búnaði námu um 30 milljónum króna.
Á Selsvelli er verið að útbúa nýja flöt á áttundu braut og stefnt er að sáningu í vor. Einnig stendur til að endurnýja rafhlöður í golfbílum klúbbsins.
Ottó Leifsson sem var endurkjörinn formaður sagði í skýrslu formanns að árangur Golfklúbbs Flúða væri ekki mældur eingöngu í fjárhagsuppgjöri, fjölda golfhringja eða framkvæmda á vellinum. „Hann verður fyrst og fremst mældur í þeim anda sem ríkir innan félagsins. Ég sé félag þar sem fólk leggur á sig ómælda vinnu af áhuga og umhyggju. Ég sé öflugt starfsfólk sem vinnur af fagmennsku. Ég sé nefndir sem taka ábyrgð og bakhjarla sem sýna okkur traust. Ég sé félagsmenn sem eru stoltir af sínum klúbbi. Það gefur okkur alla ástæðu til bjartsýni,“ sagði Ottó og þakkaði m.a. sérstaklega hjónunum Önnu og Sveini sem hafa verið í mótanefnd í 41 ár.

Frá aðalfundi Golfklúbbsins Flúða.


