Jón Karlsson stóð sig vel á alþjóðlegu móti á Spáni
Fimm íslenskir kylfingar tóku þátt The Andalucian Senior Open 2026 sem fram fór á Fairplay Golf & Spa Resort á Spáni dagana 20.–22. nóvember. Jón Karlsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð í 2.–3. sæti í atvinnumannaflokki.
Þar sigraði Svíinn Rickard Hassel á samtals 145 höggum, einu höggi undir pari (-1).
Jón Karlsson lék samtals á þremur höggum yfir pari (+3) og fyrir árangurinn hlaut hann 136 þúsund krónur í verðlaunafé.
Árni Páll Hansson tók einnig þátt í atvinnumannaflokki og stóð sig vel. Hann lék á níu höggum yfir pari (+9).
Aðrir íslenskir keppendur voru Halldór Ingólfsson, Hörður Hinrik Arnarson og Ásgeir Guðbjartsson og kepptu þeir í flokki áhugamanna.
Mótið var haldið í þriðja sinn og tóku kylfingar frá fjölmörgum löndum þátt. Keppnin hófst með 18 holu Betri bolta keppni en í kjölfarið tók við 36 holu höggleikur þar sem keppt var um efstu sætin.
Mikil gróska hefur verið í 50+ golfi í Evrópu og hafa íslenskir kylfingar verið að sækja fleiri mót á undanförnum árum.



