Kylfingar í Mosfellsbæ vilja yfirbyggt æfingasvæði
Yfirbyggt æfingasvæði, aukið eftirlit á golfvöllunum og fleiri ruslatunnur eru meðal helstu óska félagsmanna Golfklúbbs Mosfellsbæjar samkvæmt niðurstöðum árlegrar viðhorfskönnunar klúbbsins.
Um 480 félagsmenn tóku þátt í könnuninni. Almenn ánægja með starfsemi klúbbsins er á svipuðum slóðum og undanfarin ár en mest jókst ánægja félagsmanna með Bakkakotsvöll. Forsvarsmenn GM þakka það meðal annars framkvæmdum á vellinum.
Golfklúbbur Mosfellsbæjar er meðal fjölmennustu golfklúbba landsins en samkvæmt heimasíðu félagsins eru félagsmenn 2.375 talsins. Fullt er í klúbbinn og biðlisti eftir inngöngu.
Klúbburinn rekur tvo golfvelli, 18 holu Hlíðavöll og níu holu Bakkakotsvöll í Mosfellsdal. Þá eru fimm TrackMan-golfhermar í golfskálanum Kletti.
„Það gleður okkur að sjá að það er almenn ánægja hjá okkar félögum með starf klúbbsins og hefur það haldist þannig undanfarin ár. Hástökkvari ársins er Bakkakot og greinilegt að mikil ánægja er með þær framkvæmdir sem hafa átt sér stað þar,“ segir Ágúst Jensson, framkvæmdastjóri GM um niðurstöður könnunarinnar.



