Góð byrjun hjá Haraldi í Höfðaborg
Haraldur Franklín byrjaði mjög vel á Circa Cape Town mótinu á Áskorendamótaröðinni í Cape Town í Suður Afríku í dag. Hann lék 18 holurnar á 68 höggum og er á fjórum undir pari.
Haraldur hóf keppnistímabil sitt á HotelPlanner mótaröðinni í síðustu viku og náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn. Haddi var heitur í dag. Hann fékk reyndar skolal á annarri holu en fékk svo fimm fugla á næstu sextán holum og kláraði hringinn á 68 höggum.

