Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Golf fitness námskeið Nordica og Pro Golf
Mánudagur 19. október 2009 kl. 14:36

Golf fitness námskeið Nordica og Pro Golf

Fyrsta Golf fitness námskeið Nordicaspa og Pro Golf er nú í fullum gangi og er þátttaka vonum framar. Gunnar Már, TPI þjálfari, sér um líkamlega hluta námskeiðsins í Nordicaspa en Brynjar Geirsson og Ólafur Már Sigurðsson sjá um golftækni hluta námskeiðsins í Básum. Námskeiðið hefur tekist með eindæmum vel og eru nemendur hæstánægðir með fræðsluna og árangurinn til þessa. Kylfingur.is tók Gunnar Má tali og spurði hann út í námskeiðið.

Hvernig námskeið er Golf fitness?
„Við erum fyrst og fremst að koma til móts við þarfir hvers og eins sem er á námskeiðinu hjá okkur. Allir eru með sína veikleika og sín markmið í golfinu og það erum við að vinna með. Líkamlega screenið segir okkur til um hvað þarf að bæta hjá hverjum og einum og síðan er unnið eftir sérhannaðri áætlun ásamt því sem við erum að auka grunnstyrkinn, þolið og hreyfanleikann hjá öllum hópnum. Það sem fólk er ánægt með er að þetta er allt gert með þarfir kylfingsins í huga og hve einasta hreyfing og æfing er golftengd og það er einstakt við þetta prógramm og er greinilega að hitta í mark.“sagði Gunnar Már. 

Hvernig hafa viðbrögðin verið við Golf fitness?
„Viðbrögðin hafa verið afar góð og við sjáum og heyrum að við erum færa líkamlega getu og undirbúning golfara á nýtt plan. Fólk er þegar farið að finna mun á hreyfigetu og liðleika og það er að skila sér beint í betri sveiflu viðkomandi. Við erum einnig að byrja með afrekshóp GR í Tpi  prógramminu og það verður athyglisvert að fylgjast með bætingunum næsta vor þegar þau byrja keppnistímabilið. Þetta er hugsað sem 8 mánaða undirbúningstímabil hjá þeim

Þar sem bætingarnar eru mældar reglulega á tímabilinu og haldið þétt utan um allan hópinn. 70% allra spilara á bandaríska PGA túrnum eru að nýta sér hugmynda og þjálfunarfræði Tpi og þetta er það sem koma skal hjá öllum golfurum sem sækjast eftir bættum árangri og meiðslaminni líkama.“

Kylfingur.is ræddi einnig við Karítas Kjartansdóttir sem er nemandi á námskeiðinu og spurði hana hvort hún hefði tekið framförum eftir að hún hóf þátttöku í námskeiðinu?
„Bakið hefur verið minn veikleiki og ég því ekki hreyft mig sem skildi í sveiflunni. Ég hef verið með bakvandamál í mjög langan tíma og prófað margt en því miður ekki fundið miklar breytingar en eftir 3ja vikna æfingar hjá Gunna á námskeiðinu eru verkirnir nánast úr sögunni. Einnig hafa þessar æfingar ásamt því að hafa farið í sveiflugreiningu og æfingar hjá Brynjari og Óla Má, gert það að verkum að sveiflan mín  hefur gjörbreyst til hins betra. Ég er farin að slá mikið lengra og ég finn að ég á enn mikið inni. Frábært námskeið í alla staði sem á klárlega eftir að skila sér á vellinum næsta sumar”. - Karitas Kjartansdóttir


Golf Fitness – Ný námskeið, hefjast 26. október – Fyrirlestur um námskeiðið laugardaginn 24. október. Skráning í síma 444-5090.