Guðrún á pari í Höfðaborg
Guðrún Brá lék á pari á fyrsta hring á nvestec SA mótinu á LET Evrópumótaröð kvenna en leikið er á Royal Cape golfvellinum í Höfðaborg.
Guðrún fékk tvo skolla á fyrri níu holunum en tvo fugla á seinni níu auk fjórtán para í stöðugum leik sínum. Líklegt er að hún þurfi að sækja meira í næsta hring því besta skor dagsins er tíu undir pari.
Guðrún æfði og tók þátt í fjórum mótum á Sunshine mótaröðinni í S-Afríku í vetur og svo í fyrsta mótinu á LET í S-Afríku í síðustu viku.
Hún er með takmarkaðan þátttökurétt á LET, sterkustu mótaröð kvenna í Evrópu en getur aukið hann með góðri frammistöðu í mótum sem hún fær þátttökurétt í.



