Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Golfklúbbur Akureyrar tekur þátt í samstarfi um upplifun á Norðurlandi
Miðvikudagur 22. apríl 2026 kl. 10:05

Golfklúbbur Akureyrar tekur þátt í samstarfi um upplifun á Norðurlandi

Golfklúbbur Akureyrar og fyrirtækið Drift EA hafa tekið höndum saman í nýju samstarfi sem miðar að því að efla upplifun fyrirtækja og teyma sem sækja Norðurland heim. Markmiðið sé að sameina vinnu, tengslamyndun og afþreyingu í einni heildstæðri upplifun. Þetta kemur fram á akureyri.net

„Samstarfið byggir á þeirri hugmynd að skapandi samtöl og sterk tengsl myndist oft utan hefðbundinna fundarherbergja. Með því að samþætta golf við vinnuferðir er mögulegt að skapa aðstæður þar sem þátttakendur geta bæði unnið að verkefnum sínum og notið afþreyingar í náttúru Norðurlands,“ segir í frétt akureyri.net

Að sögn Sesselju Ingibjargar Barðdal, framkvæmdastýru Driftar EA, hefur lengi verið unnið að því að þróa umhverfi sem hvetur til nýrra hugmynda og dýpri tengsla. Hún segir golfið gegna þar mikilvægu hlutverki, þar sem það bjóði upp á afslappaða umgjörð sem auðveldi samskipti og hugmyndavinnu. Hún bendir jafnframt á að aðstæður á Jaðarsvelli skapi einstaka upplifun fyrir þátttakendur. Undir það tekur Steindór Kr. Ragnarsson, framkvæmdastjóri GA og tekur samstarfinu fagnandi. Aðstaða klúbbsins hafi þróast mikið og sé á pari við það besta í dag en mikil aukning hefur orðið í fjölda félaga í klúbbnum á undanförnum áratug og á síðustu árum hefur aðstaða hans batnað mikið með byggingu æfingassvæðis og viðbyggingar sem hýsi fjölda golfherma.

Samstarfið er hluti af markvissri uppbyggingu Driftar EA á samstarfsneti á Norðurlandi. Með því vilja Drift EA og GA skapa vettvang þar sem fyrirtæki og teymi geta sótt innblástur, styrkt tengsl og fundið ný tækifæri til vaxtar; jafnvel með því einu að stíga út af fundi og inn á golfvöll.