GolfTV: Sörenstam hrósar fjögurra ára golfara
Lawson Hovey er nafn sem vert er að leggja á minnið.
Lawson Hovey er nafn sem vert er að leggja á minnið. Þrátt fyrir að kylfingurinn sé aðeins fjögurra ára gamall hefur hann náð mikilli færni í golfíþróttinni. Annika Sörenstam, sem einokaði kvennagolfið á sínum tíma, deildi þessu myndbandi af Hovey á Twitter – og tók fram að þessi sveifla væri einstök. Hún bendir einnig á að Hovey hafi ávallt sigrað á þeim mótum sem hann hefur tekið þátt í.


