Gekk í annarri tilraun hjá Birgi - Íslandsmeistari í holukeppni 2026
Birgir Björn Magnússon úr Golfklúbbnum Keili er Íslandsmeistari karla í holukeppni eftir sigur á Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR á 19. holu, fyrstu bráðabanaholunni en þeir enduðu jafnir eftir 18 holur í úrslitaleik mótsins á Hólmsvelli í Leiru.
Birgir átti frábært upphafshögg á 1. holu Hólmsvallar þegar leikur hans og Guðmundar hélt áfram. Boltinn lenti neðst í brekkunni fyrir framan flötina og rúllaði rétt framhjá stönginni og munaði mjög litlu að hann færi holu í höggi (á par 4 holu) en boltinn fór rétt framhjá og endaði aðeins of langt, yfir flöt, í karganum. Þaðan vippaði hann inná um rúman metra frá holu. Guðmundur var í vandræðum eftir teighöggið sem endaði neðan við 18. flötina. Pinninn á 19. holu (1. flöt) var hægra megin og nokkur vindur og höggið því erfitt, flatarglompan á milli hans og stangarinnar og lítið pláss. Innáhöggið hjá Guðmundi frá um 80 metrum fór yfir flöt, hann vippaði og kláraði par. Birgir þurfti því að setja niður sitt pútt fyrir sigri og Íslandsmeistaratitli sem hann og gerði.
Úrslitaleikurinn var sveiflukenndur. Birgir var þrjár holur upp eftir sex holur. Báðir fengu par á 7. holu og staðan því óbreytt. Birgir fékk síðan fimm skolla á næstu sex holum og Guðmundur nýtti sér það og náði tveggja holu forystu. Keilismaðurinn vann síðan 14. holu og 17. holu þar sem hann drævaði inn á flöt um 6 metra frá og loks féll lokabrautin á fugli. Þeir slógu báðir inn á flöt en Guðmundur var mun nær pinna en á neðri palli 18. flatar en þó um 10-12 metra frá stöng og langsótt að fá fugl. Birgir gerði vel að tvípútta og púttið hjá Guðmundi var nálægt fyrir erni en báðir fengu fugl. Þeir héldu því áfram og Birgir kláraði dæmið á 1. braut.
Leikur um þriðja sætið fór á 23. braut þar sem Aron Emil Gunnarsson frá Selfossi vann hinn unga Veigar Heiðarsson frá GA. Hörkuleikur og Aron Emil fékk 8 fugla á 23 holum og Veigar einum minna.
„Ég lék til úrslita í Íslandsmótinu í holukeppni 2018 þegar ég tapaði fyrir Rúnari Arnórssyni í Leirunni. Það var því sætt að vinna núna,“ sagði Birgir Björn eftir sigurinn en viðtal við kappann og myndskeið af honum í lokahringnum eru væntanlegt á kylfingur.is.


