Haraldur áfram í stuði í S-Afríku - jafn í 8. sæti
Haraldur Franklín Magnús hélt uppteknum hætti á öðrum keppnisdegi á Circa Cape Town mótinu á Áskorendamótaröðinni í Cape Town í Suður Afríku í dag. Hann lék annan hringinn á sama skori, 68 höggum og er á átta höggum undir pari þegar mótið er hálfnað.
Annar hringurinn hjá okkar manni var svipaður, fimm fuglar og einn skolli. Með þessu skori færðist Haddi upp töfluna en hann var í 26. sæti í gær en er nú kominn í topp-10 og er jafn í 8. sæti, þremur höggum á eftir forystusauðnum, Trevor Fisher.
Keppnisvöllurinn í þessari viku er Royal Cape Golf Club í Cape Town, Höfðaborg. Þetta er elsti golfklúbburinn í landinu, stofnaður 1885.
Hér er innlits-innslag í þennan gamla klúbb með heimamanninum Jovan Rebula.

