Fréttir

Haraldur jafn í 11. sæti fyrir lokadaginn í Höfðaborg
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 7. febrúar 2026 kl. 17:38

Haraldur jafn í 11. sæti fyrir lokadaginn í Höfðaborg

Haraldur Franklín Magnús lék þriðja hringinn pari á Circa Cape Town mótinu á Áskorendamótaröðinni í Cape Town í Suður Afríku í dag. Haddi er jafn í 11. sæti fyrir lokahringinn.

Haraldur lék fyrstu tvo hringina á 68 höggum og eftir þriða hringinn á pari er hann á átta höggum undir pari þegar einn hringur er eftir.

Haraldur var tvo undir pari á fyrri níu holum og vann sig upp í 6. sæti en missti aðeins taktinn á seinni níu þar sem hann fékk 3 skolla og einn fugl.

Keppnisvöllurinn í þessari viku er Royal Cape Golf Club í Cape Town, Höfðaborg. Þetta er elsti golfklúbburinn í landinu, stofnaður 1885.

Staðan.