Haraldur og risameistarinn Erne Els í sama móti í S-Afríku
Haraldur Franklin er í góðum hópi kylfinga á hinu magnaða Fancourt golfsvæði í George í S-Afríku. Hann lék fyrsta hringinn á einu höggi undir pari og mun þurfa að sækja á næsta hring því forystusauðurinn er á tólf undir pari. Stórkylfingurinn og fjórfaldur risameistari, heimamaðurinn Erne Els þarf líka að sækja en hann er á -3.
Els er 54 ára og hefur tekið eitt og eitt mót á DP mótaröðinni en þetta er á HotelPlanner Tour sem er 2. deildin í Evrópu og þar er Els ekki vikulegur gestur en hann hefur keppt á öldungamótaröðinni í Bandaríkjunum undanfarin fjögur ár. Okkar maður, Haraldur Franklín er jafn í 87. sæti eftir fyrsta hringinn en mótið var stytt í 54 holur þar sem aflýsa þurfti leik á í gær fimmtudag vegna rigningar.
Hringurinn var nokkuð skrautlegur hjá okkar manni en Haddi fékk tvo fugla, einn örn, einn skolla og einn tvöfaldan skolla. Samtals á 71 höggi, -1. Annars var Haraldur ekki við bestu heilsu því hann fékk einhver leiðindi í sig og þurfti að fá lyf hjá lækni mótsins. „Þetta var ekki gott. Ég þurfti að hlaupa oft á dolluna en lagaðist aðeins við pillur sem ég fékk og er bara ánægður með skorið miðað við aðstæður,“ sagði Haraldur í stuttu spjalli við kylfing í dag.
Það verður áhugavert að sjá hvernig Haraldi gengur og hver veit nema hann lendi í ráshópi með hinum magnaða Els en sem háði einn lengsta bardaga í holukeppni einmitt á Links vellinum á Fancourt svæðinu árið 2003. Það var í Foretabikarnum, liðakeppni mili Bandaríkjanna og Alþjóða liðsins. Síðasti leikurinn var milli Els og Tigers og eftir 18 holur voru þeir jafnir og liðin líka og síðasta viðureign mótsins var á milli þeirra. Þeir fóru þrjá holur í bráðbana og voru jafnir alla leið þegar ekki var hægt að leika lengur vegna myrkurs. Niðurstaðan var sú að úrslitin voru jafntefli, í eina skipti í sögu mótsins sem Bandaríkjamann hafa haft mikla yfirburði í alla tíð. Fyrirliðar liðanna voru engir aðrir en Jack Nicklaus fyrir Bandaríkin og Gary Player fyrir S-Afríku en þeir eru tveir af frægustu og bestu kylfingum sögunnar og unnu samtals 27 risatitla, Jack 18 og Gary 9.


