Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Helgi Runólfsson tekur forystuna á Hvaleyri – Lék á 69 höggum
Föstudagur 24. júní 2011 kl. 14:23

Helgi Runólfsson tekur forystuna á Hvaleyri – Lék á 69 höggum

Helgi Runólfsson úr Keili er efstur af þeim kylfingum sem hafa lokið leik á Hvaleyrarvelli en Síma mótið á Eimskipsmótaröðinni hófst á vellinum í morgun. Hann lék á 69 höggum í dag eða tveimur höggum undir pari vallarins. Það var góður sprettur á seinni níu holunum sem gerði útslagið hjá Helga í dag en hann fékk þrjá fugla í röð á 14., 15., og 16. holu. Helgi var mjög kátur með hringinn í dag.

Ég var að slá og pútta vel. Púttin hafa verið minn akkilesarhæll að undanförnu en ég var að pútta mun betur í dag en ég hef gert að undanförnu. Þetta er minn besti hringur á mótaröðinni og ekki leiðinlegt að byrja svona í mótinu. Vonandi heldur þetta svona áfram. Ég er í þessu til að vera með og hafa gaman af þessu,“ segir Helgi sem 29 ára gamall og starfar sem vallarstarfsmaður á Hvaleyrarvelli.

Ég hef verið að æfa meira í vor en síðustu ár og áhuginn kannski orðinn meiri en áður. Ég er þokkalegur helgargolfari og titla mig ekki sem afrekskylfing þó ég vildi að ég væri það góður. Það væri algjör draumur að blanda sér í baráttuna og ég set stefnuna á að halda áfram á þessari braut á morgun.“

Staðan í mótinu