Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Sigurður góður á Nordic - Guðrún og Haraldur ekki áfram
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 18. maí 2026 kl. 11:06

Sigurður góður á Nordic - Guðrún og Haraldur ekki áfram

Íslensku atvinnukylfingunum gekk misvel á mótunum í síðustu viku. Sigurður Arnar Garðarson hélt áfram góðu gengi á Nordic mótaröðinni en Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Haraldur Franklín komust ekki í gegnum niðurskurðinn á sínum mótum.

Guðrún Brá lék á Amundi German Masters mótinu á LET, Evrópumótaröðinni. Hún lék hringina tvo á 78 og 75 höggum og endaði í 95. sæti og komst ekki áfram. Hún verður meðal keppenda í næstu viku.

Lokastaðan.

Haraldur Franklín Magnús lék á Challenge de Catalunya á Áskorendamótaröðinni í Evrópu. Hann lék 36 holurnar á þremur undir pari og komst ekki áfram en hann vantaði tvö högg upp á niðurskurðinn. Haraldur verður í eldlínunni í Óðinsvéum í vikunni þegar hann verður meðal keppenda á Danish golf Challenge mótinu.

Lokastaðan.

Sigurður Arnar Grétarsson hefur komið sterkur inn á Nordic mótaröðinni á þessu ári. Hann lék flott golf og lék hringina þrjá á 74-70-68, fjórum undir í heildina og endaði í 18. sæti. Sigurður er í 30. sæti á stigalistanum en fimm efstu í lok keppnistíðar tryggja sér sæti á Áskorendamótaröðinni.

Lokastaðan.