Fréttir

Hulda Clara upp um 17 sæti í svæðiskeppninni
Hulda Clara Gestsdóttir. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson/akureyri.net
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
þriðjudaginn 10. maí 2022 kl. 21:44

Hulda Clara upp um 17 sæti í svæðiskeppninni

Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, lék á 3 höggum yfir pari á öðrum hring NCAA Ann Arbor Regional í svæðiskeppni háskólagolfsins í Bandaríkjunum en leikið er á Seminole Legacy vellinum í Tallahassee í Flórída. Hún vann sig upp um 17 sæti milli hringja og situr í 40.-43. sæti fyrir lokahringinn á morgun á 10 höggum yfir pari.

Hulda Clara, sem komst með skólaliði sínu í Denver háskólanum áfram í svæðiskeppnina, fékk fjóra fugla og sex skolla á hringnum.

Staðan í einstaklingskeppninni

Hún á rástíma á lokahringnum á morgun upp úr klukkan eitt á íslenskum tíma.

Lið Denver háskólans fór upp um tvö sæti milli hringja og situr í 10. sæti liðakeppninnar eftir fyrsta hring.

Staðan í liðakeppninni

Skorkort Huldu Clöru