Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Í beinni: B59 Hotel mótið - Hringur 2
Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr GOS er í forystu í kvennaflokki. Ljósmynd: GSÍ/Sigurður Elvar Þórólfsson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
laugardaginn 21. maí 2022 kl. 10:48

Í beinni: B59 Hotel mótið - Hringur 2

Fyrsta mótið á stigamótaröð GSÍ, B59 Hotel mótið, hófst í gær á Garðavelli Golfklúbbsins Leynis á Akranesi.

Keppnisfyrirkomulag B59 Hotel mótsins er höggleikur en leiknir verða þrír hringir á jafn mörgum dögum. Ræst verður út alla þrjá keppnisdagana frá klukkan 8:00. Eftir annan keppnisdag verður skorið niður en 70% keppenda í bæði karla og kvennaflokki komast áfram á lokahringinn.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Í karlaflokki eru þeir Axel Bóasson úr GK og Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG efstir og jafnir eftir fyrsta hring. Þeir komu í hús á 67 höggum eða á 5 höggum undir pari og eiga eitt högg á þá Aron Emil Gunnarsson úr GOS og Hákon Örn Magnússon úr GR.

Fyrstu ráshópar í karlaflokki eru farnir út á annan hring en efstu menn verða ræstir út kl. 11:30 í dag.

Í kvennaflokki er Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr GOS í forystu. Hún kom í hús á 71 höggi eða á 1 höggi undir pari og á tvö högg á þær Maríu Eir Guðjónsdóttur og Berglindi Erlu Baldursdóttur en báðar eru þær úr GM.

Fyrstu ráshópar í kvennaflokki verða ræstir út laust fyrir hádegi í dag en efstu konurnar kl. 12:40.

Staðan á mótinu

Rástímar