Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Íslandsmótið í höggleik: Jafnt á toppnum í karlaflokki
Andri Már Óskarsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
fimmtudaginn 8. ágúst 2019 kl. 21:28

Íslandsmótið í höggleik: Jafnt á toppnum í karlaflokki

Fyrsti keppnisdagur Íslandsmótsins í höggleik fór fram í dag á Grafarholtsvelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Í karlaflokki eru það Andri Már Óskarsson og Hlynur Geir Hjartarson sem leiða en nánar má lesa um kvennaflokkinn með því að smella hér.

Hlynur Geir og Andri Már, sem báðir leika fyrir Golfklúbb Selfoss, léku fyrsta hring mótsins á tveimur höggum undir pari en endaspretturinn hjá Andra var einstaklega góður þar sem hann fékk fugl á 16., 17. og 18. holu.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Höggi á eftir Hlyni og Andra eru sex kylfingar og fjórir kylfingar deila svo 9. sæti á parinu.

Haraldur Franklín Magnús er einn þeirra sem deilir þriðja sætinu en hann sigraði einmitt á Íslandsmótinu árið 2012. Þá er Hákon Örn Magnússon einnig jafn í þriðja sætinu en hann er klúbbmeistari GR og kann því vel á Grafarholtsvöllinn.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, sem á vallarmetið á hvítum og gulum teigum, er jafn í 13. sæti eftir fyrsta keppnisdag á höggi yfir pari. Búast má við því að hann verði í baráttunni þegar úrslitin ráðast á sunnudaginn.

Þrefaldi Íslandsmeistarinn Axel Bóasson lék fyrsta hringinn á þremur höggum yfir pari og er því fimm höggum á eftir efstu mönnum. Axel fékk tvöfaldan skolla á 7. holu og tapaði fjórum höggum í viðbót á hringnum en fékk fugl á 4., 14. og 18. holu.

Annar hringur mótsins fer fram á morgun, föstudag. Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.

Staða efstu kylfinga í karlaflokki:


Hlynur Geir Hjartarson.