Ívar orðinn yfirkennari á Spáni
Ívar Hauksson, PGA golfkennari hefur tekið við yfirgolfkennarastöðunni á Mar Menor golfrísortinu í Murcia á Spáni. Kappinn hefur verið á Spáni síðan 1996 og fjölmargir Íslendingar hafa sótt hann heim.
„Við byrjuðum að bjóða Íslendingum ferðir á rísortið sem ég starfa á í fyrrasumar og viðtökurnar hafa verið mjög góðar. Fjöldi Íslendinga hafa komið og við höfum bókað ferðir fram í júlí á næsta ári. Það er alltaf gaman að fá landann á staðinn. Það eru allir hressir, vilja spila mikið og svo hefur verið mjög gott að gera í golfkennsluna,“ sagði íslenski golfkennarinn sem lengi hefur flaggað myndarlegu, ljósu hártagli.
Hægt er að finna kappann á Facebook þar sem hann er með meiri upplýsingar um rísortið og ferðir þangað.