Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Þriðjudagur 24. febrúar 2009 kl. 22:33

Kreppuráð - markaður með notaðar golfvörur

Samkvæmt nýjustu tölum um sölu nýrra bíla á Íslandi er um 95% samdráttur frá fyrra ári. Hinsvegar er mikið fjör í sölu notaðra bíla. Braskarar græða sem aldrei fyrr og skemmst að minnast deilna um sölu lúxusbílanna frá Kaupþingi, stærsta styrktaraðila íslensks golfs undanfarin ár.  Þeir hefðu alveg eins getað gefið bílana til GSÍ, sem svo aftur hefði getað selt þá úr landi og grætt feitt. Afslátturinn sem var veittur af bílunum hefði dugað til að borga fyrrverandi styrktarsamning Kaupþings við GSÍ næstu 5 árin. Því miður varð það ekki niðurstaðan.

Ég vona svo sannarlega að það sama verði ekki sami samdrátturinn í sölu á nýjum golfbúnaði í sumar. Við eigum góðar golfverslanir hér á landi sem boðið hafa uppá á mjög gott úrval af golfvarningi. Enda var góðæri. Ég reyndi t.d. að hafa það fyrir reglu að leika ekki heilt tímabil með sama driverinn í pokanum.  Helst ekki heldur járnasettið.  Svo ekki sé minnst á pútterinn. Þeir fengu nokkrir að fjúka, enda ómögulegt að kenna sjálfum sér um að nota 36 pútt á hring. Það myndi ég aldrei gera með rétta verkfærið í höndunum. Nú er staðan sú að ég á fullan bílskúr af golfdóti. Einstaklega mikið af hlífðarfatnaði, golfpeysum, tvö járnasett, þónokkuð af brautartrjám, úrval af fleygjárnum og fleira drasli sem er komið í ónáð. Svo eru líka nokkrar kylfur og dót sem synir mínir hafa eignast í gegnum tíðina, en það hafa ekki ennþá verið fundnar upp þær kylfur sem vaxa með börnunum. Kannski bara útaf því að R&A hefur bannað það. Hvað veit maður með þá. Það er örugglega eitthvað um þetta í reglubókinni.

Ég væri svo sem ekki að velta mér uppúr þessu nema vegna þess að ágætur golfkennari og golffarastjóri hringdi í mig með þá snjöllu hugmynd að það væri vit að einhver tæki að sér að koma á koppinn góðum skiptamarkaði með notaðan golfvarning. Hann ætti hrúgu af dóti inni í geymslu - en var nú ekkert viss um að hann tímdi að selja neitt af því ! En best væri þetta kannski með búnað fyrir börn og unglinga, einmitt útaf þessu vandamáli að kylfurnar vaxa ekki með börnunum. Við vorum sammála um að það væri R&A að kenna. Það hefur ekki verið neitt framboð af kylfum með lengjanlegu skafti. Hinsvegar er nægt framboð af pútterum sem maður hittir ekki holuna með. Algerlega óþolandi. Golfverslanirnar hafa svo sem verið duglegar við að taka notaðan varning upp í nýjan en við erum kannski nú í vor að horfa á aðeins nýjan veruleika í verði á golfvarningi. Okkar ágæti gjaldmiðill hin íslenska króna hefur veikst duglega frá því við lékum síðast á grænum og vel grónum golfvöllunum.

Því er ég sammála golfkennaranum og legg til að einhver setji upp golfmarkað hér á landi í mars. Þeir sem þurfa að losa sig við notað dót komi með það á markaðinn. Þeir sem vilja skipta notuðu upp í notað hafi tækifæri til að gera það og þeir sem losna við notað golfdót, geta náttúrlega notað peningana til að kaupa sér nýtt golfdót, farið í golfferð eða borgað félagsgjaldið. Ég sé alveg fyrir mér skiptimarkað með púttera sem eru í ónáð hjá eigendum og annan með drivera sem setja boltann aldrei á braut. Slíkir ólukkugripir geta í höndum annars kylfings reynst hinir mestu fjársjóðir. Það er allavega allt betra en að láta þetta sitja ónotað í geymslunni.  Einnig mætti setja á stofn markað með notaða golfbolta. Golfverslanir gætu tekið notaða bolta upp í nýja.  Notuðu boltana mætti hreinsa og setja í pakkningar og selja aftur sem notaða bolta.

Með von um að einhver framtakssamur grípi boltann á lofti og komi þessu öllu í framkvæmd. Ég bíð spenntur.

Með golfkveðju,

Margeir Vilhjámsson

Örninn 2025
Örninn 2025