Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Leynast íslenskir kylfingar víða?
August Thor Høst. Ljósmynd: Facebook
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
miðvikudaginn 25. maí 2022 kl. 20:25

Leynast íslenskir kylfingar víða?

Í apríl sagði Kylfingur frá metþátttöku Íslendinga á Ecco mótaröðinni (Nordic Golf League) en á Bravo Tours Open í Danmörku voru þeir hvorki fleiri né færri en 13 talsins. En leynast íslenskir kylfingar víðar?

Kylfingur fékk ábendingu um að á Ecco mótaröðinni leiki hinn 21 árs gamli, August Thor Høst. Hann ku vera sonur Guðrúnar Ágústsdóttur frá Siglufirði en sjálfur hefur August aldrei búið á Íslandi. Það má því kannski segja að Íslendingarnir hafi verið 14 á Bravo Tours Open eftir allt saman.

Í vikunni höfum við greint frá framgöngu þriggja íslenskra kylfinga sem leika á Moss & Rygge Open á Ecco mótaröðinni í vikunni en leikið er í Noregi. Það má því einnig til sanns vegar færa að þeir hafi verið fjórir eftir allt saman.

August Thor leikur fyrir Odense Eventyr Golf klúbbinn í Danmörku. Hann lék á 68 höggum eða á 4 höggum undir pari í gær og á 71 höggi eða á 1 höggi undir pari í dag og situr 4.-5. sæti á samtals á 5 höggum undir pari.

Staðan á mótinu

Skorkort August Thors

Þekkir þú íslenska kylfinga sem leika erlendis og hafa ekki fengið umfjöllun hér á Kylfingi? Sendu okkur endilega ábendingu á [email protected].