Fréttir

Móti helgarinnar á Öldungamótaröðinni frestað
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 24. ágúst 2019 kl. 10:40

Móti helgarinnar á Öldungamótaröðinni frestað

Öldungamótaröðin (LEK) sem fara átti fram á Grafarholtsvelli sunnudaginn 25. ágúst hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Eftir helgi koma upplýsingar um nýja dagsetningu.

Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Golfklúbb Reykjavíkur vegna endurgreiðslu á mótsgjaldi. Hægt er að hafa samband í síma 585-0200 eða á netföngin [email protected] eða [email protected] frá og með mánudeginum 26. ágúst.