Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Ný búð með golffatnað opnaði í maí.
Úr verslun þeirra í Golf Company
Þriðjudagur 16. júní 2015 kl. 07:00

Ný búð með golffatnað opnaði í maí.

Í byrjun maí opnaði ný búð með golffatnað í Dugguvoginum númer 3. Safalinn heildverslun, setti upp verslun  hjá sér og ber hún nafnið Golf Company. Þau eru með mikið úrval af Abacus golffatnaði en um er að ræða afar vandaðar vörur.

Að sögn Þorvaldar Ólafssonar hjá Golf Company hefur salan farið mjög vel af stað en þau hafa verið með kynningar á fatnaðinum hjá nokkrum klúbbum nú þegar.

Örninn 2025
Örninn 2025

„Viðtökurnar hafa verið betri en við þorðum að vona. Við erum að bjóða allt það nýjasta frá Abacus sem kom út fyrir sumarið 2015“ sagði Þorvaldur í samtali við Kylfing og bætti við að þau séu einnig með tilboð fyrir hópa.

„Við bjóðum einnig upp á OGIO golfpoka hjá okkur en þeir hafa verið mjög vinsælir í gegnum tíðina“ bætti hann einnig við að lokum.