Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Nýr og glæsilegur golfvöllur á Rifi
Slegið af 7. teig á Rifsvelli.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 25. september 2026 kl. 11:33

Nýr og glæsilegur golfvöllur á Rifi

Nýr níu holu golfvöllur var opnaður um mitt sumar nálægt flugvellinum á Rifi á Snæfellsnesi. Mikill hugur er í félögum í Golfklúbbnum Jökli sem hafa unnið að þessu skemmtilega verkefni síðustu 6-7 ár.

Samhliða opnun vallarins er verið að reisa nýjan golfskála sem er 125 fermetrar að stærð. Hjörtur Ragnarsson, ritari golfklúbbsins, segir í samtali við Skessuhorn að húsið sé keypt frá Landshúsum ehf. og sé flutt inn tilsniðið frá Litáen. Fjórir menn frá framleiðanda húsanna sjá um að reisa húsið. Hjörtur segir að sú vinna gangi mjög vel og verður húsið formlega tekið í notkun næsta sumar. Jónas Kristófersson er byggingameistari golfskálans og sá hann um að reisa sökkla en TS vélaleiga annast jarðvegsvinnu.

Hjörtur segir að það hafi orðið sprenging í aðsókn að klúbbnum síðan völlurinn var tekinn í notkun. „Við vorum um 100 manns áður í klúbbnum en núna erum við að nálgast 200 félaga. Við bjóðum upp á svokallaða fjaraðild vegna þess að golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu geta ekki tekið inn nýja félaga vegna aukinnar aðsóknar. Með þessu er átt við að félagar sem ekki eru búsettir í Snæfellsbæ greiða hálft félagsgjald, en heimamenn hafa sömuleiðis fjölmennt í klúbbinn,“ segir Hjörtur í samtali við Skessuhorn.

Jón Bjarki Jónatansson er einn þeirra félaga sem hafa staðið í þessari uppbyggingu nýja vallarins á Rifi. „Við hófum þessa vegferð fyrir nokkrum árum og fengum ráð frá Edwin Rögnvaldssyni í upphafi en svo hönnuðum við völlinn í raun sjálfir. Það var sáð í flatir fyrir sex árum og brautir stuttu síðar. Í upphafi fórum við á fund með Kristni Jónassyni, bæjarstjóra í Snæfellsbæ, og hann tók okkur mjög vel. Við gerðum okkur vonir um að fá kannski 10 milljónir króna en bæjarstjórinn gerði gott betur og fjórfaldaði þá upphæð sem kom sér vel. Við höfum unnið þetta síðan í sjálfboðavinnu nokkrir félagar og erum ánægðir með útkomuna. Viðbrögð hafa líka verið góð,“ sagði Jón Bjarki.

Þeir félagar leituðu síðan til eigenda stórra fyrirtækja sem tengjast svæðinu og fengu ekki síðri móttökur þar þegar leitað var eftir fjárhagsaðstoð við að byggja skála.

Ritstjóri kylfings.is lék völlinn í ágúst og er óhætt að segja að Rifsvöllur hafi komið skemmtilega á óvart. Í þessu litla samfélagi á Snæfellsnesi er kominn klassa golfvöllur í glæsilegu umhverfi þar sem útsýnið er frábært. Brautir eru grónar. Teigar eru góðir og flatir eru frábærar. Þær eru stórar með skemmtilegu landslagi og ljóst að þeir félagar hafa gert hlutina vel og myndarlega.

Völlurinn reynir á kylfinga og margar áhugaverðar brautir. Fyrsta holan er par 4, þægileg byrjunarhola. Önnur brautin er mjög falleg, par 3, og þriðja brautin er par 3 og er í erfiðari kantinum. Fjórða holan er par 3 og þar munaði litlu að kylfingsritstjórinn færi í sögubækurnar á Rifi með því að ná fyrsta draumahögginu á vellinum því upphafshöggið fór í stöngina en boltinn vildi ekki ofan í. Næstu holur eru líka skemmtilegar, sérstaklega 6. hola. Áttunda brautin er par 5 sem býður upp á nákvæmni kylfings en lítil á rennur meðfram henni og alveg upp að lokaflöt vallarins, í átt að verðandi klúbbhúsi. Níunda flötin liggur í sömu átt en brautin kemur aðeins þvert á hana. Stutt og skemmtileg lokahola.

Sem sagt: Vel gert Rifsfélagar og ekki hægt annað en að hvetja kylfinga til að heimsækja þennan flotta og skemmtilega golfvöll.

Fleiri myndir í myndasafni neðar í frétt.

Nýr golfvöllur á Rifi