Nýr vefur Landssamtaka eldri kylfinga
Landssamtök Eldri Kylfinga, LEK, hafa opnað nýja síðu á slóðinni www.lek.is. Á síðunni má finna helstu upplýsingar um samtökin og starfsemi þeirra.
Þá má finna mótaskrá og fréttir úr starfinu, t.d. kemur fram að LEK dagurinn verður haldinn þann 13. júní nk.


