Ólafía komst inn í mót vikunnar á LPGA mótaröðinni
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, verður með á Thornberry Creek LPGA Classic mótinu sem fer fram í vikunni á LPGA mótaröðinni í golfi.
Mótið hefst á fimmtudaginn og lýkur á sunnudaginn en skorið verður niður á föstudaginn eftir tvo hringi.
Þetta verður fjórða mót Ólafíu Þórunnar á LPGA mótaröðinni á þessu tímabili en hún er með takmarkaðan þátttökurétt á þessari sterkustu mótaröð heims.
Ólafía á enn eftir að komast í gegnum niðurskurðinn á LPGA móti á þessu tímabili en hún hefur þó verið að sýna ágæta takta á Symetra mótaröðinni undanfarið.
Í fyrra lék Ólafía fyrstu tvo hringi Thornberry Creek LPGA Classic mótsins á 3 höggum undir pari en það dugði þó ekki til þess að komast áfram.