Ólafur Björn: Besta högg sem ég hef slegið en krækti fyrir bráðabana
„Eftir langa bið náðum við loks að landa sætum sigri á heimavelli okkar í Charlotte. Sigurinn á vafalaust eftir að auka sjálfstraustið í liðinu og vonandi náum við að halda áfram að spila vel,“ sagði Ólafur Björn Loftsson í samtali við Kylfing.is en hann varð í 2. sæti í einstaklingskeppni á Irish Creek Collegiate mótinu.
Charlotte háskólinn, sem Ólafur Björn leikur með, hafði einnig góðan sigur í liðakeppni í mótinu en þetta er fyrsti sigur skólans á leiktíðinni. Ólafur er mjög ánægður með sína frammistöðu en hann varð aðeins einu höggi á eftir liðsfélaga sínum Corey Nagy.
„Ég átti frábært mót þar sem ég gerði alla hluti mjög vel og var hársbreidd frá sigri. Ég byrjaði mjög vel á lokahringum og var kominn með tveggja högga forystu í mótinu. Ég spilaði sóknargolf allan lokahringinn og steig varla feilspor,“ segir Ólafur.
Einn af þessum dögum
„Ég var að pútta mjög vel en þetta var einn af þessum dögum þegar hlutirnir duttu ekki með mér. Ég fékk mörg tækifæri á að bæta við fuglum en það tókst ekki,“ segir Ólafur en hann fékk gott tækifæri á lokaholunni til að komast í bráðabana.
„Ég vissi að ég þyrfti að fá fugl á lokaholunni til að jafna við Corey, en 18. holan er 215 metra löng par-3 hola beint á móti vindi. Ég átti eitt besta högg sem ég hef slegið og boltinn endaði um tveimur metrum frá holunni. Ég krækti hins vegar fyrir fugli og missti af bráðabananum.“
Ólafur segist hafa lagt allt í sölurnar en sættir sig vel við annað sætið. „Ég reyndi hvað ég gat en þarf að sætta mig við annað sætið. Ég samgleðst Corey þó mjög mikið, hann er feiknarlega góður kylfingur og það var ljúf stund fyrir hann að vinna því hann er frá Charlotte og var með mikinn fjölda áhorfenda að fylgjast með sér.“
Næsta mót hjá Ólafi Birni og Charlotte skólanum verður um næstu helgi í Columbus í Ohio.