Fréttir

Ragnar Már lék vel í Noregi
Ragnar Már Garðarsson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
þriðjudaginn 24. maí 2022 kl. 14:24

Ragnar Már lék vel í Noregi

Þrír Íslendingar á Ecco mótaröðinni

Þrír íslenskir kylfingar leika á Moss & Rygge Open á Ecco-mótaröðinni (Nordic Golf League) í vikunni en leikið er í Noregi. Ragnar Már Garðarsson úr GKG , lauk leik nú fyrir skömmu. Ragnar kom í hús á 71 höggi eða 1 höggi undir pari vallarins og er sem stendur í 15.-32. sæti. Enn eiga margir kylfingar eftir að ljúka leik.

Ragnar Már lék stöðugt golf og fékk tvo fugla og einn skolla á hringnum.

Andri Þór Björnsson úr GR, lék fyrr í dag á 76 höggum eða á 4 höggum yfir pari vallarins.

Hinn danski, Magnus A. Østergaard leiðir í klúbbhúsi sem stendur á 6 höggum undir pari.

Gísli Sveinbergsson úr GK er enn úti á velli en hann var á pari eftir fyrri níu holur sínar í dag.

Skorkort Ragnars Más