Fréttir

Rose í sérflokki í San Diego
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 3. febrúar 2026 kl. 15:18

Rose í sérflokki í San Diego

Englendingurinn Justin Rose var í miklu stuði á Torrey Pines vellinum í Sand Diego í Bandaríkjunum í móti vikunnar á PGA mótaröðinni. Rose vann mótið og var sjö höggum betri en næsti kylfingur og tryggði sér sinn þrettánda titil á mótaröðinni.

Rose tók forystu á fyrsta degi og hélt henni út mótið og endaði á því að slá eldra met sem Tiger Woods fyrir heildarskor á 72 holum, 23 undir pari.

Rose er einn af eldri kylfingum mótaraðarinnar, 45 ára en hann var einn af lykilmönnum Evrópu í Ryder bikarnum síðasta haust. Þrátt fyrir það slær hann enn langt og það hjálpar honum að ná góðu skori. Rose hóf atvinnumannaferilinn aðeins 18 ára gamall eftir að hafa lent í 4. sæti á OPNA mótinu á Birkdale vellinum í Englandi 1998. Hann fékk boð um að taka þátt í mótum á Evrópumótaröðinni en það gekk mjög illa og hann lék í 21 móti í röð án þess að komast í gegnum niðurskurðinn. En hann hætti ekki og síðan hefur ferillinn legið upp á við. Hann vann Opna bandaríska mótið 2014 og varð fyrsti kylfingurinn til að sigra á Olypíuleikunum þegar golf var tekið upp sem keppnisíþrótt.

„Ég er hvergi nærri hættur og held áfram. Það er nóg á tankinum en vissulega þarf ég hafa meira fyrir hlutum nú en þegar ég var yngri,“ sagði Rose.