Sergio Garcia orðinn faðir
Síðasta ár hefur verið viðburðarríkt hjá Sergio Garcia, eins og tekið var saman ekki fyrir svo löngu. Þar á meðal var talað um fyrsta risatitil hans, giftingu hans og Angelu Garcia og svo óléttu Angelu.
Í gær gerðist það svo að Garcia varð faðir í fyrsta skipti. Að sögn Garcia var hann mjög spenntur, en stressaður.
„Þetta er búið að vera viðburðaríkur morgun,“ sagði Garcia. „Fyrir um einum og hálfum tíma missti hún vatnið þannig að við erum á spítalanum núna. Þetta er mjög spennandi en stressandi á sama tíma. Þetta er hálf óraunverulegt. Ég er spenntur en stressaður fyrir Angelu og barninu, ég vil bara að allt gangi vel.“
Allt gekk vel að lokum og var þetta stelpa. Hún fékk nafnið Azalea Adele Garcia, en Azalea er nafnið á 13. holunni á Augusta National vellinum þar sem Masters mótið fer fram. Á þeirri holu bjargaði hann ótrúlegu pari í fyrra, sem reyndist vera eitt af mikilvægustu augnablikum mótsins.