Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Sigurjón og Ólafur Björn léku undir pari á fyrsta degi meistaramóta
Fimmtudagur 14. júlí 2011 kl. 01:15

Sigurjón og Ólafur Björn léku undir pari á fyrsta degi meistaramóta

Meistaramótin hjá flestum af stærstu golfklúbbum landsins hófust í gær og er leikið vítt og breytt um landið. Sigurjón Arnarsson hefur tekið forystuna í Meistaramóti GR eftir að hann lék Grafarholtsvöll á 70 höggum eða einu höggi undir pari í gær. Pétur Óskar Sigurðsson er annar hjá GR og Andri Þór Björnsson þriðji. Athygli vekur að kylfingar líkt og Stefán Már Stefánsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Arnar Snær Hákonarson og Haraldur Franklín Magnús náðu sér ekki á strik.

Í meistaraflokki kvenna hjá GR er Sunna Víðisdóttir efst á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er önnur og Guðrún Pétursdóttir þriðja.

Hjá Keili lék Björgvin Sigurbergsson best í meistaraflokki karla eða á 72 höggum. Hann hefur þriggja högga forystu á Sigurpál Geir Sveinsson og Rúnar Arnórsson er svo þriðji. Í meistaraflokki kvenna hjá Keili er Signý Arnórsdóttir efst eftir fyrsta hring en hún lék á 78 höggum í gær.

Ólafur Björn Loftsson hefur tekið afgerandi forystu í Meistaramóti Nesklúbbsins og lék á 68 höggum í rokinu á Nesinu í gær. Það er hringur upp á fjögur högg undir pari sem verður að teljast mjög góð frammistaða. Hann hefur átta högga forystu eftir fyrsta hring.

Kristján Þór Einarsson úr GKj, Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG, Rafn Stefán Rafnsson úr GO og Ólafur Auðunn Gylfason úr GA leiða meistaramótin hjá sínum klúbbnum. Hér að neðan má sjá stöðuna hjá nokkrum af stærstu golfklúbbum landsins.

Meistaramót Keilis:
Karlar:
1. Björgvin Sigurbergsson GK 72 +1
2. Sigurpáll Geir Sveinsson GK 75 +4
3. Rúnar Arnórsson GK 77 +6

Konur:
1. Signý Arnórsdóttir GK 78 +7
2. Ragna Björk Ólafsdóttir GK 80 +9
3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 82 +11
4. Tinna Jóhannsdóttir GK 82 +11

Meistaramót GR:
Karlar:

1. Sigurjón Arnarsson GR 70 -1
2. Pétur Óskar Sigurðsson GR 72 +1
3. Andri Þór Björnsson GR 73 +2

Konur:
1. Sunna Víðisdóttir GR 74 +3
2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 75 +4
3. Guðrún Pétursdóttir GR 76 +5

Meistaramót GKG:
Karlar:
1. Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 75 +4
2. Rúnar Örn Grétarsson GKG 78 +7
3. Derrick John Moore GKG 78 +7
4. Starkaður Sigurðarson GKG 78 +7

Konur:
1. Ingunn Gunnarsdóttir GKG 79 +8
2. Ingunn Einarsdóttir GKG 83 +12
3. Hansína Þorkelsdóttir GKG 86 +15

Meistaramót GKj:
Karlar:

1. Kristján Þór Einarsson GKJ 75 +3
2. Davíð Gunnlaugsson GKJ 76 +4
3. Arnar Sigurbjörnsson GKJ 77 +5

Konur:
1. Nína Björk Geirsdóttir GKJ 80 +8
2. Heiða Guðnadóttir GKJ 82 +10
3. Katrín Dögg Hilmarsdóttir GKJ 88 +16

Meistaramót GO:
Karlar:

1. Rafn Stefán Rafnsson GO 74 +3
2. Theodór Sölvi Blöndal GO 77 +6
3. Phillip Andrew Hunter GO 80 +9

Konur:
1. Eygló Myrra Óskarsdóttir GO 80 +9
2. Andrea Ásgrímsdóttir GO 86 +15
3. Guðrún Björg Egilsdóttir GO 92 +21

Meistaramót Nesklúbbsins:
Karlar:

1. Ólafur Björn Loftsson NK 68 -4
2. Oddur Óli Jónasson NK 76 +4
3. Guðjón Ármann Guðjónsson NK 77 +5

Konur:
1. Karlotta Einarsdóttir NK 79 +7
2. Áslaug Einarsdóttir NK 91 +19
3. Helga Kristín Einarsdóttir NK 91 +19

Meistaramót GA:
Karlar:

1.-2. Ólafur Auðunn Gylfason GA 73 +2
1.-2. Örvar Samúelsson GA 73 +2
3.-4. Ingvar Karl Hermannsson GA 74 +3
3.-4. Sævar Þór Sævarsson GA 74 +3