Teigar lagfærðir á Hamarsvelli
Hjá Golfklúbbi Borgarness standa nú yfir nokkrar framkvæmdir á Hamarsvelli. Starfsmenn klúbbsins vinna að lagningu nýrra göngustíga á vellinum auk þess sem nokkrir eldri stígar eru lagfærðir. Þá er einnig unnið að teigagerð á nokkrum holum. Skessuhorn greinir frá þessu.
Að sögn Jóhannesar Ármannssonar framkvæmdastjóra GB hófust framkvæmdir um síðustu mánaðamót. Til stóð að byrja framkvæmdir í nóvember sl. en vegna tíðarfarsins í vetur gekk það ekki eftir. Jóhannes segir að stígagerð fari nú fram á milli 6. og 7. holu, við 5. holu og loks á 10. holu svo einhver dæmi séu nefnd. Fjöldi teiga á vellinum fá jafnframt upplyftingu í yfirstandandi framkvæmdalotu.
Unnið er að stækkun og endurnýjun 1., 11., 16. og 17. teigs. Einnig kemur 10. teigur sem staðsettur er við austurhlið klúbbhúss GB til með að stækka allverulega. Teigarnir verða síðan tyrfðir með þökum frá Gunnarshólma á Suðurlandi. Aðspurður um verklok segir Jóhannes að stefnt sé að þeim fyrir lok mánaðarins. Hann segir Hamarsvöll koma afar vel undan vetri. Allar flatir voru slegnar í fyrsta skipti miðvikudaginn 11. apríl sem er með fyrra móti.