Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Tony Finau mætti heim til aðdáanda með blóm og súkkulaði
Tony Finau
Þriðjudagur 31. maí 2016 kl. 19:00

Tony Finau mætti heim til aðdáanda með blóm og súkkulaði

Hinn 26 ára gamli Tony Finau átti erfiðan þriðja hring á Dean & Deluca Invitational. Á einni holunni sló hann út fyrir braut sem endaði með þeim afleiðingum að boltinn lenti á höfði Elisu Buster, ungri stelpu, sem fylgdist með.

Stelpan var send beint upp á sjúkrahús þar sem hún var saumuð en heppnin var með henni og ekkert alvarlegt gerðist. Venjan er sú að þegar kylfingur á mótaröðinni slær í áhorfanda þá fái áhorfandinn áritaðan golfhanska keppandans. Finau var alls ekki á sama máli.

Örninn 2025
Örninn 2025

Hann gerði sér ferð heim til stelpunnar og mætti með blóm og súkkulaði. Þar að auki baðst hann afsökunar og ræddu þau málin í einhvern tíma. Það þarf ekki að spurja að því, stelpunni þótti ótrúlega vænt um það. Hér að neðan er mynd sem Elisa Buster setti á Instagram og þakkaði fyrir sig.