Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Um 60 Golfsmith búðir loka vegna erfiðleika í rekstri
Þriðjudagur 8. nóvember 2016 kl. 12:47

Um 60 Golfsmith búðir loka vegna erfiðleika í rekstri

Fimmtíu og níu Golfsmith búðir munu loka í Bandaríkjunum vegna erfiðleika í rekstri. Dick's Sporting Goods keypti Golfsmith fyrir 70 milljón dollara á gjaldþrotsuppboði og munu þeir líklega breyta nöfnum þeirra búða sem eftir verða í Dick's.

Golfsmith er risa golf-keðja en fyrir áttu þeir 109 verslanir í öllum fylkjum Bandaríkjanna (nema Hawaii og Alaska). Fyrir skömmu var 20 verslunum lokað og eftir nýjustu fréttir munu aðeins 30 standa eftir. 

Örninn 2025
Örninn 2025

Rýmingasölur standa fyrir dyrum í verslunum, þar á meðal í elstu Golfsmith búðinni (frá 1992) sem jafnframt var höfuðstöðvar fyrirtækisins í Austin, Texas.

Hér má sjá lista yfir búðir sem eru að loka eða er búið að loka.