Fréttir

Úrtökumótin: Rúnar með ótrúlegan hring
Rúnar Arnórsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 11. september 2019 kl. 14:11

Úrtökumótin: Rúnar með ótrúlegan hring

Íslensku kylfingarnir héldu áfram keppni í dag á 1. stigs úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð karla í Fleesensee. Flestir spiluðu þeir vel en þó enginn jafn vel og Rúnar Arnórsson sem átti hring dagsins í mótinu.

Rúnar lék annan hring mótsins á 7 höggum undir pari og er kominn upp í 4. sæti á 6 höggum undir pari í heildina. Á hringnum fékk Rúnar alls átta fugla, einn örn og þrjá skolla.

Ragnar Már Garðarsson og Bjarki Pétursson léku einnig mjög vel á öðrum keppnisdegi og komu inn á 4 og 3 höggum undir pari. Bjarki er jafn í 13. sæti eftir tvo hringi og Ragnar er kominn upp í 29. sæti eftir slæma byrjun.

Þriðji keppnisdagur mótsins af fjórum fer fram á morgun, fimmtudag.

Skor íslensku kylfinganna:

2. Rúnar Arnórsson, -6
13. Bjarki Pétursson, -3
29. Andri Þór Björnsson, 0
29. Ragnar Már Garðarsson, 0
29. Axel Bóasson, 0
41. Aron Snær Júlíusson, +1

Líkt og Kylfingur greindi frá í vikunni komast um 20% kylfinga áfram af hverjum mótsstað á 1. stigi úrtökumótanna. Gera má ráð fyrir því að 16 komist áfram í Þýskalandi en 84 kylfingar hófu leik á þriðjudaginn.