Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Vanmetið hjá kylfingum að mýkja skrokkinn fyrir golfleik
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 23. júní 2026 kl. 17:52

Vanmetið hjá kylfingum að mýkja skrokkinn fyrir golfleik

„Það er frábært að taka stutta jógaæfingu fyrir golfhring. Við hitum vel upp með jógaæfingum en það er held ég vanmetið hjá kylfingum yfirleitt, að mýkja skrokkinn fyrir golfleik,“ segir Friðrik Þór Friðriksson, kylfingur í Golfklúbbi Sandgerðis en hann hefur lagt stund á jóga í tæp tuttugu ár og býður upp á Karlajóga námskeið á veturna í íþróttamiðstöðinni  Garði í Suðurnesjabæ.

Bræðralag golfsins er félagsskapur kylfinga, aðallega frá Suðurnesjum og meðal annars margir starfsmenn frá HS Veitum, sem fara í golfferðr til útlanda á hverju ári. Í þessum golfferðum hefur Friðrik Þór boðið félögum sínum að taka nokkrar jógateygjur áður en farið er á teig. 

„Þetta byrjaði á því að Páll Egonsson fararstjóri og einvaldur bað mig um að teygja á mönnum með nokkrum jógaæfingum áður en við færum að spila. Ef Palli einvaldur biður mann um eitthvað þá segir maður auðvitað já. Þegar við vorum í Englandi í fyrra þá byrjuðum við að spila rétt fyrir hádegi en vorum þá búnir að hita upp með jógaæfingum áður. Þetta liðkaði menn og var mikið hópefli fyrir mannskapinn. Það voru nokkrir efins í byrjun en mjög fljótlega sáu menn hversu góð áhrif æfingarnar höfðu og voru ánægðir að geta hitað svona upp. Við fórum svo til Ítalíu í vor. Þar voru aðstæður öðruvísi, við byrjuðum að spila klukkan hálfníu á morgnana og náðum ekki að hita upp með jóga í byrjun dags en enduðum stundum með afslappandi æfingum í lok dagsins. Allar jógateygjur sem miða að einbeitingu og jafnvægi nýtast kylfingum mjög vel. Má þar nefna Tréð, Örninn, Dansarann og Fjallið. Allar hliðarsveiflur eru einnig góðar, sem liðka menn um miðjuna. Allt eru þetta standandi æfingar,“ sagði Friðrik Þór.