Vel heppnuð uppskeruhátíð barna-og unglingastarfs GKG
Síðastliðinn föstudag fór fram uppskeruhátíð barna- og unglingastarfs GKG. Áður en sjálf hátíðin hófst voru leiknar 9 holur í Mýrinni, með Texas scramble fyrirkomulagi, þar sem fjórir leikmenn voru saman í liði. rábært veður var á þessum haustdegi, og því nutu allir sín á vellinum segir í frétta á heimasíðu GKG.
„Að loknu mótinu komu allir inn í skála þar sem fram fór verðlaunaafhending fyrir Mix og Egils Kristals mótaraðirnar, auk þess að veita sérstakar viðurkenningar fyrir mestu framfarir, efnilegustu og kylfinga ársins. Boðið var uppá veglega pizzuveislu fyrir krakkana og aðstandendur og var svo sannarlega góð stemmning.
Mestu framfarir pilta: (mesta lækkun fgj.)
Tekið er tillit til hvort leikmaður var að leika í mótum sem og æfingahringjum.
Sindri Snær Kristófersson
Fgj. 23,4 úr 36,0, um 40% hringja leiknir í mótum
Mestu framfarir stúlkna: (mesta lækkun fgj.)
Eva María Gestsdóttir
Fgj. 21,3 úr 29,7, um helmingur hringja leiknir í mótum
Efnilegastur pilta (mesta bæting í mótum milli ára):
Sigurður Arnar Garðarsson
Íslandsmeistari í holukeppni 14 ára og yngri
3. sæti á stigalista GSÍ 14 ára og yngri
5. sæti á USKIDS í Skotlandi í maí.
2. sæti á Finnish Junior mótinu í júní
Fgj. 5,1 úr 8,3
Efnilegust stúlkna (mesta bæting í mótum milli ára):
Herdís Lilja Þórðardóttir
4. á stigalista 14 ára og yngri á Íslandsbankamótaröð
Sigraði á Meistaramóti GKG í sínum flokki
Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur (kylfingur ársins):
Piltar: Aron Snær Júlíusson
Stigameistari 17-18 ára
9. sæti á Eimskipsmótaröð – stigalista.
Sigraði á þremur mótum á Íslandsbankamótaröðinni.
Var í U18 landsliði Íslands sem lék á EM landsliða í Osló, þar sem liðið náði mjög góðum árangri, 11. sæti.
Stúlkur: Gunnhildur Kristjánsdóttir
Hefur verið í fararbroddi unglingsstúlkna í GKG undanfarin ár.
Keppti á Irish girls mótinu í vor
Fékk skólastyrk í Elon háskólann í Bandaríkjunum.