Viðtal: Birgir Björn breytti leikskipulaginu og varð Íslandsmeistari í holukeppni
Birgir Björn Magnússon úr Golfklúbbnum Keili er Íslandsmeistari karla í holukeppni eftir sigur á Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR á 19. holu, fyrstu bráðabanaholunni en þeir enduðu jafnir eftir 18 holur í úrslitaleik mótsins.
Birgir segist hafa skipt um „leikskipulag“ eftir höggleikinn og ræðir það og fleira úr skemmtilegu Íslandsmóti á Hólmsvallar í Leiru 19.-21. júní.
Páll Ketilsson ræddi við kappann eftir sigurinn í Leirunni.


