VIÐTAL OG VIDEO: Sigurför Ólivers Elí á Opna breska
Hinn fimmtán ára Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili kom sá og sigraði á OPNA breska unglingamótinu 18 ára og yngri sem leikið var á Glasgow Gailes strandvellinum aðra vikuna í ágúst 2026.
Faðir hans, Björn Halldórsson fylgdist með syninum á mótinu og tók upp myndefni þegar hann var að keppa. Kylfingur.is fékk föðurinn í fréttamannahlutverkið og hann tók viðtal við Óliver Elí eftir sigurinn.
Í viðtalinu fer Keilismaðurinn ungi yfir mótið en hann lagði marga af bestu ungu kylfingum heims í viðureignunum en að lokum var það hann sem var ósigraður.
Björn faðir hans sagði í spjalli við kylfing.is að sigur Ólivers hafi vakið mikla athylgi, ekki síður um stöðu golfs á Íslandi.
Framundan eru ýmis tækifæri og Óliver Elí hefur verið valinn í níu manna Evrópulið sem keppir gegn úrvalsliði Bretlands og Írlands í næstu viku. Með sigrinum vann hann sér líka þátttökurétt á Opna breska áhugamanna, einu stærsta áhugamannamóti heims og einnig á lokaúrtökumót fyrir OPNA mótið (The OPEN).


