Fréttir

Wiesberger kominn á toppinn á Race to Dubai stigalistanum
Bernd Wiesberger.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 14. október 2019 kl. 18:45

Wiesberger kominn á toppinn á Race to Dubai stigalistanum

Austurríkismaðurinn Bernd Wiesberger hefur átt frábært ár og eins og greint var frá fyrr í dag hefur hann aldrei verið ofar á heimslistanum eftir þrjá sigra á þessu ári.

Það er ekki eini listinn sem Wiesberger er kominn ofar því á Race to Dubai listanum, stigalista Evrópumótaraðarinnar, er hann kominn í efsta sætið. Hann er því kominn upp fyrir Jon Rahm sem komst í efsta sætið eftir sigur sinn um síðustu helgi.

Wiesberger er nú kominn með 4.198,2 stig, 299,9 stigum meira en Rahm. Staða 10 efstu manna má sjá hér að neðan og listann í heild sinni má nálgast hérna.