Ekki aftur snúið eftir að hafa hitt fyrsta alvöru golfhöggið
Ríkharður Hrafnkelsson á tengdaföður sínum, Hafsteini Þorgeirssyni heitnum, mikið að þakka en hann setti honum þau skilyrði að ef hann ætlaði að verða tengdasonur hans yrði hann að byrja í golfi. Þetta var árið 1977. Riki var ekki á því en þegar tengdó mætti með golfsett inn á stofugólfið hjá honum varð honum ljóst að hann gæti ekki skorast undan. Rikki tók golfið með trompi vægast sagt og hefur verið með kylfu í hönd síðan og starfað í golfklúbbi nær alla tíð.
Á aðalfundi Golfklúbbsins Mostra í Stykkishólmi í byrjun árs kvaddi hann stjórn Mostra eftir samtals 36 ár í stjórn. Rikki varð formaður á stofnfundi 13.nóvember 1984 og gegndi því næsta aldarfjórðunginn. Á árunum 2009 til 2015 bjó hann í Vestmannaeyjum og var þar í nefndum og stjórn GV um tíma. Hann kom aftur inn stjórn Mostra 2015. Frá 1984 hafa einungis liði 9 mánuðir þar sem hann hefur ekki haft formlegt embætti í golfklúbbi á Íslandi. Aðalfundurinn var vel sóttur og var ánægja með starfið og reksturinn á liðnu starfsári. Klúbburinn velti rúmum 55 milljónum og var hagnaðurinn sá mesti í sögu klúbbsins eða 13,7 milljónir. „Ég stíg mjög stoltur frá borði og þakka fyrir mig. Það er ánægjulegt er að sjá ungu kynslóðina koma og taka yfir stjórn klúbbsins,“ sagði Ríkharður við þetta tækifæri. Kylfingur.is lagði fyrir kappann nokkrar spurningar.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Þegar ég kynntist konunni minni henni Karínu Hertu í mars 1977, fór hún að tala um golf, ég þá verandi afreksmaður í körfubolta og landsliðsmaður. Golf fyrir mér á þeim tíma var eitt það vitlausasta sem til var, áhuginn minni en enginn. Sumarið 1977 dró tengdafaðir minn heitinn, Hafsteinn Þorgeirsson, mig út á golfvöll og lét mig slá golfbolta en með frekar döprum árangri. Veturinn á eftir mætti Hafsteinn heim til okkar, þar sem við vorum nýbyrjuð að búa, með gamla golfsettið sitt (ársgamalt), skellti því á stofugólfið og sagði, ef þú ætlar að verða tengdasonur minn þá verður þú að spila golf. Lét svo fylgja með að hann ætlaði að reyna að kenna mér tökin á golfíþróttinni. Sumarið 1978 gekk ég í Golfklúbbinn Keili og hóf golfiðkun. Það var ekki aftur snúið eftir að hafa hitt fyrsta alvöru golfhöggið.
Helstu afrek í golfinu?
Unnið nokkur opin golfmót, sérstaklega hér áður fyrr. Ætli það sé ekki rétt að nefna tvo sigra okkar hjóna í opnum hjóna- og paramótum, á Akureyri 2019 og í Vestmannaeyjum 2020.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Þau eru nokkur atvikin í gegnum tíðina en ætli það sé ekki rétt að nefna það nýjasta. Haustið 2024 vorum við í afmælisgolfferð (40 ára) Mostra á Fairplay á Spáni. Ég hafði verið í vandræðum með teighöggin fyrstu dagana og var að reyna að ná tökum á sveiflunni. Ég vissi að ég var að halda of fast um gripið, stóð á fyrsta teig og sveiflaði, losaði um gripið, vissi ekki fyrr en í einni sveiflunni missti ég “dræverinn“ og hann flaug út í tjörn sem er þar við hliðina á teignum. Það vildi til að það var dálítill vindur svo það var ekki um annað að ræða en að bíða eftir því að kylfan ræki að landi. Það voru allmargir sem urðu vitni að atvikinu sem vakti mikla kátínu og fékk ég margar léttar athugasemdir í framhaldinu.
Hefurðu farið holu í höggi og þá hvar?
Búinn að setja niður í einu höggi alls fimm sinnum. Fyrsta skiptið 12. ágúst 2001 á 17. holu á Fróðárvelli, 10. júlí 2012 á 12. holu í Vestmannaeyjum, 4. júlí 2013 á 7. holu í Vestmannaeyjum, 28. júlí 2016 á 6. holu á Víkurvelli og svo 24. september 2024, í annað skiptið, á 6. holu á Víkurvelli í Stykkishólmi.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Ég hef leikið golf með nokkrum sem eru þekkt nöfn en spurningin er: hver er frægur? Ég held að nefni mág minn Sigurð Hafsteinsson sem allir kyflingar á Íslandi yfir fimmtugt þekkja. Annan ætla ég að nefna og er það Brynjar Níelsson, Valsari með meiru, en með honum og Ágústi Ögmundssyni, öðrum Valsara, lékum við hjónin golfhring í Öndverðarnesi fyrir nokkrum árum. Á fyrsta teig sló Brynjar, dró boltann örlítið til vinstri en var ekki að átta sig á því hvert boltinn fór. Frú Karín tjáir honum að boltinn hefði farið til vinstri. Þá leit hann á Kaju og segir, frú mín góð, hér fara boltar annaðhvort beint, til hægri eða í hina áttina.
Hver eru markmið sumarsins?
Þessa dagana er ég að setjast í helgan stein vinnulega séð, svo nú verður mun meiri tími til að leika sér í golfi. Markmiðið er að spila enn meira golf með vinum, ferðast og njóta lífsins. Vonandi lækkar forgjöfin dulítið í framhaldinu. Framtíðin er björt.
Hvað væri það fyrsta sem þú myndir leiðbeina byrjanda með?
Kenna gripið og stöðuna, sveifla rólega, láta kylfuna ráða og horfa á boltann. Upp með hökuna, fram með kassann og brosa. Njóta, þetta er einungis leikur.
Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
Nei, en fyrir golfhring er ég frekar vanafastur á flestalla hluti, hvað er í hverjum vasa, röðun á kylfum í pokann ofl.
Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?
Minn veikleiki í golfi eru öll lengri högg af brautum inn á flatir, verð að taka það í gegn í sumar.

Aldur: Fæddur 30. apríl 1957 = að verða 69 ára.
Klúbbur: Golfklúbburinn Mostri
Forgjöf: Í dag er hún 12,8 en fór lægst 2007 í 4,9
Uppáhaldsmatur: Eiginlega allt sem hún Kaja mín eldar, en til hátíðarbrigða er að fá gott nautakjöt með tilheyrandi og góðu rauðvíni.
Uppáhaldsdrykkur: Íslenska vatnið yfirleitt, en eftir golfhring er nauðsynlegt að teiga einn eða tvo kalda.
Uppáhaldskylfingur: Rory McIlroy erlendis en hér heima er það vinur minn Vignir Sveinsson.
Þrír uppáhaldsgolfvellir: Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er búinn að vera minn uppáhaldsgolfvöllur síðan ég kom þar fyrst 1996. Golfvöllinn í Öndverðarnesi hef ég alltaf gaman af að spila og svo er það að sjálfsögðu minn heimavöllur, Víkurvöllur.
Þrjár uppáhaldsgolfholur: Í fyrsta lagi er það 6. holan á Víkurvelli þar sem ég hef tvisvar farið holu í höggi, falleg hola. 8. holan í Vestmannaeyjum, Fjósakletturinn og 1. holan á Víkurvelli. Fugl á fyrstu gefur manni sjálftraust inn í framhaldið.
Erfiðasta golfholan: Ekki spurning, 13. holan í Vestmannaeyjum er eins og par fimm hola fyrir mig. Hef þó einu sinni á ævinni fengið fugl þar, með því að vippa niður úr flatarkanti. Segjum ekki frá öllum tvö-, þreföldu skollunum og öllu hinu (en það væri gaman að rifja upp nokkrar sögur).
Erfiðasta golfhöggið: Lengri höggin af brautum og inn á flöt.
Ég hlusta á: Reyni að hlusta á Kaju mína.
Besta skor: 71 högg (-1) í Grundarfirði, var kominn mínus fimm eftir 11 holur, 73 högg (+2) í Öndverðanesi og 70 högg (-2) á Víkurvelli.
Besti kylfingurinn: Tiger Woods erlendis en hér heima Birgir Leifur Hafþórsson
Golfpokinn: Ping poki, Ping dræver G425, Ping 3 tré K15, járnasettið G425 frá Ping, fleygjárn G5i frá Ping, putter Ping Craz-EH árgerð 2003, hanski frá Titleist, skór frá Footjoy.

Rikki er einn af stærstu Einherjum landsins með fimm draumahögg á ferlinum.

Rikki með nýjum formanni Mostra, Margeir Inga Rúnarssyni.

Kapplagjótan, 8. braut í Eyjum er ein af uppáhaldsholum Rikka og Birgir Leifur Hafþórsson sá besti á Íslandi.


