Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andrea Ýr og Tumi Akureyrarmeistarar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 14. júlí 2026 kl. 06:51

Andrea Ýr og Tumi Akureyrarmeistarar

Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Tumi Hrafn Kúld eru Akureyrarmeistarar 2026 en 178 keppendur mættu til leiks í meistaramóti GA að þessu sinni.

Það var spenna hjá körlunum en þriðji hringurinn skóp sigurinn hjá Tuma en hann lék hann á fjórum undir pari, 67 höggum en hringina fjóra á +7 (75-77-67-72). Í lokin munaði þó aðeins þremur höggum. Í 2. sæti var Hafsteinn Thor Guðmundsson á tíu yfir pari (76-78-71-69). Í 3.-4. sæti enduðu þeir Patrik Róbertsson og Víðir S. Tómasson á +15.

Þetta var í annað sinn sem Tumi vinnur en sjá sjötti hjá Andru Ýr. Hún lék mjög vel seinni tvo hringina og tryggði sér titilinn á +18 (81-76-72-73). Önnur varð Björk Hannesdóttir á +26 og þriðja Kara Líf Antonsdóttir á +39.