Anna Nordqvist með einkirningasótt
Anna Nordqvist er einn af betri kvenkylfingum Evrópu um þessar mundir. Hún þarf þó að takast á við stóra áskorun þessa dagana, en hún greindist með einkirningasótt nú á dögunum. Norqvist er á fullu að undirbúa sig fyrir Opna breska kvennamótið og Solheim Bikarinn, sem fram fara um næstu og þarnæstu helgi.
Veikindin hafa sett strik í reikninginn, en Nordqvist er þess vongóð að hún geti mætt á teig á Kingsbarn vellinum á morgun, þegar Opna breska kvennamótið hefst.
„Ég er búin að vera rúmliggjandi heima í Svíþjóð síðustu tvær vikur. Fólk hefur áhyggjur af því að ég sé að ofgera mér með því að spila um helgina en ég er að hlusta á lækninn minn. Síðustu daga hefur mér farið að líða betur.“
Nordqvist, sem er 30 ára gömul, er í 12. sæti á heimslistanum, en engin kona frá Evrópu eru listuð hærra en hún á heimslistanum. Hún hefur ekki getað spilað síðan á Opna bandaríska fyrir þremur vikum og dró sig úr Opna skoska mótinu fyrir fyrsta hring um síðustu helgi.
Með því að draga sig úr mótinu náði hún ekki lágmarksfjölda móta sem keppa þarf í á Evrópumótaröðinni til þess að öðlast þátttökurétt í Solheim Bikarsliðinu. Hún þarf því að treysta á að vera valin af fyrirliðanum, Annika Sorenstam, til þess að komast í liðið.