Axel og Guðrún best í Hvaleyrarbikarnum
Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir sigruðu í Hvaleyrarbikarnum sem lauk á Hvaleyrarvelli í dag, fimmta GSÍ stigamóti sumarsons. Guðrún Brá vann kvennaflokkinn með sex högga mun en Axel tryggði sér sigur gegn Sigurði Bjarka Blumenstein á annarri holu bráðabana.
Sigurður Bjarki lék hringina þrjá á 70, 75 og 69 höggum en Axel á 73, 72 og 69 höggum. Þeir luku því báðir leik á 214 höggum, tveimur höggum undir pari.
Þeir léku 15. holu Hvaleyrarvallar í bráðabananum. Báðir fengu par þegar holan var leikin í fyrra skiptið og þurftu því að leika hana aftur. Í seinna skiptið fékk Axel par en Sigurður Bjarki missti parpúttið sitt og þurfti því að játa sig sigraðan gegn margföldum Íslandsmeistara og klúbbmeistara Keilis.
Axel fékk 42 pör, sjö fugla og fimm skolla í mótinu, en enginn kylfingur paraði fleiri holur en heimamaðurinn.
Böðvar Bragi Pálsson var einnig í baráttu um sigurinn fram á síðustu holu. Hann þurfti fugl á 18. holu til að komast í bráðabanann en fékk par og lauk leik á einu höggi undir pari. Böðvar varð því þriðji, höggi á eftir Axel og Sigurði Bjarka.
Tómas Eiríksson Hjaltested varð fjórði á pari. Aron Emil Gunnarsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Aron Snær Júlíusson urðu jafnir í fimmta sæti á tveimur höggum yfir pari.
Sigur Guðrúnar var sannfærandi og öruggur en hún leiddi frá fyrsta hring til loka. Hún lék lokahringinn á 75 höggum, þremur yfir pari, og lauk mótinu á 220 höggum, fjórum höggum yfir pari og vann með sex högga mun. Hún lék hringina á 73-72 og 75 höggum.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Elsa Maren Steinarsdóttur deildu öðru sæti á tíu höggum yfir pari. Perla fékk jafnframt flesta fugla í kvennaflokki í mótinu, eða átta. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Þóra Sigríður Sveinsdóttir urðu jafnar í fjórða sæti á 17 höggum yfir pari.
Næsta stórmót bestu kylfinga landsins verður Lexus mótið í Leirdal 23.-25. júlí. Síðan er það Íslandsmótið í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík í 6.-10. ágúst.




