Bætir Guðrún við fimmta titlinum? Lenti í umspili á Korpunni 2013
„Þetta leggst bara mjög vel í mig. Völlurinn lítur vel út. Þátttakan er góð og svo er bara að vona að veðurguðirnir verði í þokkalegu skapi. Spáin er ekkert alltof glæsileg,“ segir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi. Hún freistar þess að vinna titilinn í fimmta sinn þegar mótið fer fram á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík.
Guðrún Brá vann þrjú ár í röð 2018–2020 en bætti svo fjórða titlinum við þegar leikið var á Hvaleyrinni, heimavelli hennar, í fyrra. „Það væri gaman að vinna titilinn í fimmta sinn,“ segir Hafnfirðingurinn sem bætti enn einum Íslandstitli við í sumar þegar hún varð Íslandsmeistari í holukeppni. Þá vann hún eitt af stigamótunum, Hvaleyrarbikarinn.
Ritstjóri Kylfings.is rifjar það upp með Guðrúnu að hún hafi verið í eldlínunni á Íslandsmótinu þegar það fór síðast fram á Korpunni, árið 2013.
„Jú, við vorum einmitt að rifja þetta upp hérna í dag. Ég fékk smá svona í hjartað þegar ég heyrði 2013, mér finnst það ekki vera svona langt síðan. En jú, við enduðum þrjá jafnar, ég, Ólafía Þ. Kristinsdóttir og Sunna Víðisdóttir og fórum í þriggja holu umspil. Eftir það datt Ólafía út og ég og Sunna héldum áfram í bráðabana á 10. holu. Ég fékk lélegan skolla en hún par og vann titilinn. Þetta var hörkuspenna og skemmtilegt en ég man að ég var taugaóstyrk í byrjun,“ rifjar Guðrún upp en hún var aðeins 19 ára þá.
Hvernig er svona golfsumarið búið að vera hjá þér hingað til?
„Bara flott. Golfsumarið byrjaði hjá mér í febrúar og ég var að keppa mikið í útlöndum, fyrst í S-Afríku og síðan í vor og snemmsumars á LET Evrópumótaröðinni. Svo hefur þetta verið í bland síðan þá, hér heima og úti,“ en Guðrún fór m.a. sem liðsstjóri hjá ungmennalandsliði kvenna á Evrópumót í byrjun júlí.
Völlurinn meira krefjandi eftir breytingar
Það hafa verið gerðar smá breytingar á Korpúlfsstaðavellinum, nokkrar brautir lengdar. Hvernig er völlurinn?
„Hann er bara mjög flottur. Við erum í rauninni að spila á gulum teigum nema á held ég einhverjum fjórum holum sem gerir þetta bara krefjandi en mjög skemmtilegt.“
Er eitthvað sérstakt sem þú þarft að leggja áherslu á í þínum leik?
„Nei, svo sem ekki. Þetta er náttúrulega bara langhlaup, þetta mót, fjórir dagar og þetta er bara spurning um að gera sem fæst mistök.“
Sóknarfærin á par 5 brautunum
Hvar liggja sóknarfærin fyrir fugla?
„Par-5 holurnar hérna, alveg klárlega, þótt það sé búið að lengja þær aðeins en það eru svona færin sem maður hefur. Svo eru brautir þar sem maður þarf að vera skynsamur á.“
Þannig að þú ert bara sátt og klár í slaginn fyrir Íslandsmót?
„Algjörlega.“
Guðrún fer síðan utan eftir Íslandsmótið í golfi, strax að því loknu. Hún segir ekki alveg ljóst hvað hún fái þátttökurétt í mörgum mótum en hún er með takmarkaðan þátttökurétt á LET, Ladies European Tour, sterkustu mótaröð kvenna í Evrópu.
Hvernig ertu í högglengd þegar þú miðar þig við aðrar konur á Evrópumótaröðinni?
Ég myndi segja að ég væri bara svona aðeins yfir meðallagi. Ég er ekki með þeim högglengri og heldur ekki höggstutt.
Hefurðu unnið eitthvað í högglengdinni sérstaklega undanfarin ár?
„Já, það kom náttúrulega þarna brjálæði þegar allir vildu slá lengra og maður svona datt svolítið á þann vagn án þess að ég hafi eitthvað misst mig í því. Maður fann alveg að vellirnir voru byrjaðir að lengjast og allir aðrir voru byrjaðir að lengjast. Þá þarf maður svolítið að vera í takt við það sem var að gerast en þetta var allt innan skynsemismarka hjá mér.“

Guðrún með Íslandsbikarinn eftir fjórða sigurinn í fyrra.



