Tómas vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð
Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með í frábæru veðri og á skemmtilegum golfvelli.
Tómas og Guðrún Brá Björgvinsdóttir voru tvö eftir á síðustu holunni á Nesvellinum og þar hafði Tómas betur.
Mótið var haldið í samstarfi við Arion banka sem í mótslok afhenti BERGIÐheadspace ávísun að upphæð einnar milljónar króna.
Keppendur í Einvíginu á Nesinu 2026:
Aron Snær Júlíusson, GKG
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Hlynur Bergsson, GKG
Logi Sigurðsson, GS
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GKG
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
Skarphéðinn Egill Þórisson, NK
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR




