Mjög góð byrjun en helgin þung hjá Haraldi
Haraldur Franklín Magnús náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun á Infortar Estonian Challenge mótinu á HotelPlanner mótaröðinni sem lauk í Eistlandi í dag. Haraldur endaði jafn í 54. sæti á fjórum höggum undir pari.
Hann lék fyrsta hringinn á höggi undir pari, annan á fimm undir, þriðja á tveimur yfir og lokahringinn á höggi yfir pari, 71-67-74-73.
Haraldur er í 154. sæti á stigalista Hotel Planner mótaraðarinnar sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Hann verður meðal keppenda á næsta móti sem verður í næstu viku í Skotlandi.



